Lengstu ríkis/íbúðabréfin falla töluvert í verði 30. júní 2009 10:17
Lengstu flokkar ríkisbréfa og íbúðabréfa hafa fallið töluvert í verði undanfarna sjö daga. Þannig hafa lengstu ríkisbréfin (RB19 og RB25) fallið um 3,4-3,5% og lengstu íbúðabréfin (HFF34 og HFF44) um 4-4,2%. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Þar segir að ávöxtunarkrafa allra ríkisbréfa og íbúðabréfa hélt áfram að hækka í gær. Hækkunin á ávöxtunarkröfu íbúðabréfa var á bilinu 2 til 13 punktar á sama tíma og ávöxtunarkrafa ríkisbréfa hækkaði um 8 til 18 punkta. „Ekki er ólíklegt að þessar miklu sviptingar sé í tengslum við stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans sem kynnt verður á fimmtudaginn kemur," segir í Hagsjánni. Yngvi Örn Kristinsson forstöðumaður hagfræðideildarinnar segir að þetta komi ekki á óvart því lengri bréfin séu viðkvæm fyrir vaxtabreytingum. „Það er óvissan um hvað gerist á fimmtudag sem veldur þessu verðfalli," segir Yngvi Örn. „Í fyrstu töldu menn að stýrivöxtunum yrði haldið óbreyttum enda hefur verðbólgan aukist frá síðustu vaxtaákvörðun og gengi krónunnar veikst. Nú síðustu daga hafa menn svo verið að spá í að lítil vaxtalækkun verði niðurstaðan."
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira