Ólafur markahæstur í úrslitum Meistaradeildarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. júní 2009 18:45 Ólafur Stefánsson skýtur hér að marki Kiel. Nordic Photos / AFP
Ólafur Stefánsson hefur skorað flest mörk í sögu úrslitaleikja Meistaradeilda Evrópu og hefur þar með skráð nafn sitt enn einu sinni á spjöld handboltasögunnar. Ólafur skoraði fjórtán mörk í úrslitaleikjunum tveimur gegn Kiel en hann leikur með Ciudad Real á Spáni. Það var í fjórða sinn sem Ólafur verður Evrópumeistari. Samtals hefur hann skorað 68 mörk í úrslitaleikjunum sínum í Meistaradeildinni. Þar að auki hefur hann verið markahæstur sinna manna í öll þau fjögur skipti sem hann hefur orðið meistari. Þegar Ólafur skoraði tólf mörk í síðari úrslitaleik Ciudad Real og Kiel í fyrra jafnaði hann met Spánverjans Enric Masip sem varð fyrstur til að skora meira en 50 mörk í úrslitaviðureignum Meistaradeildarinnar. Þeim áfanga náði hann árið 2001 en mörkin urðu alls 54. Árið 2002 bættist svo Nenad Perunicic í hóp þeirra sem hafa skorað meira en 50 mörk í úrslitaleikjunum og Ólafur varð svo þriðji maðurinn til að ná þeim áfanga. Einn leikmaður til viðbótar hefur bæst í þennan hóp en það er Frakkinn Nikola Karabatic sem fór nýverið frá Kiel til Montpellier. Hann hefur samtals skorað 60 mörk í úrslitaleikjum Meistaradeildarinnar. Markahæstu leikmenninnirnir í úrslitum Meistaradeildarinnar: 1. Ólafur Stefánsson 68 mörk 2. Nikola Karabatic 60 3. Enric Masip 54 4. Nenad Perunicic 51 5. Rafael Guijosa 44 6. Siarhei Rutenka 41 7. Antonio Ortega 39 8. Jonas Källmann 37 9.-10. Mirza Dzomba 36 9.-10. Vid Kavticnik 36
Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira