Viðskipti innlent

FME frestar innlausnum úr sjóðum rekstarfélags SPRON

Vegna ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins (FME) um yfirtöku á SPRON hefur eftirlitið með vísan til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði ákveðið að fresta tímabundið innlausnum allra verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags SPRON hf.

Í tilkynningu segir að frestun innlausna tekur gildi kl. 09.00 mánudaginn 23. mars 2009.

Ákvörðunin er tekin með hagsmuni og jafnræði eigenda hlutdeildarskírteina að leiðarljósi. Ákvörðun varðandi áframhaldandi rekstur sjóðanna verður hraðað eins og kostur er og verða nánari upplýsingar þess efnis birtar við fyrsta tækifæri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×