Sparisjóðirnir verða opnir á morgun 22. mars 2009 16:58 SPRON verður eini bankinn sem ekki opnar á morgun.
Sparisjóðirnir hafa sent frá sér sameiginlega fréttatilkynningu þar sem kemur fram að starfsemi sparisjóðanna muni vera eðlileg á morgun, mánudaginn 23. mars, fyrir utan SPRON. Heimabankar verða einnig aðgengilegir. Fréttatilkynningin er svohljóðandi: Með þeim samhæfu aðgerðum sem stjórnvöld á Íslandi hafa gripið til er ætlað að verja hagsmuni viðskiptavina sparisjóðanna og tryggja bankaþjónustu um land allt. Í fréttatilkynningu viðskiptaráðuneytisins er sagt að með aðgerðunum hafi styrkum stoðum verið skotið undir áframhaldandi starfsemi sparisjóða. Sparisjóðunum verður þar með gert kleift að taka virkan þátt í endurreisn hagkerfisins með eftirfarandi markmið að leiðarljósi: Að tryggðir verði sem fjölbreyttastir valkostir neytenda í fjármálaþjónustu Að fjármálaþjónusta verði í boði um land allt Að hagræðingu verði náð fram í rekstri sparisjóðanna Að samfélagslegt hlutverk sparisjóðanna verði tryggt. Með þessum aðgerðum telja stjórnvöld að styrkari stoðum hafi verið skotið undir bankakerfið og að kostnaður ríkissjóðs verði vel innan settra marka í fjárlögum. Miðað við að 92% Íslendinga telja það vera mikilvægt að sparisjóðirnir starfi áfram á íslenskum fjármálamarkaði og þau skýru skilaboð sem fram koma hjá stjórnvöldum þá munu sparisjóðirnir standa sína ábyrgð með því að leggja áfram höfuðáherslu á að þjónusta íslenskt samfélag og munu halda því áfram með því að veita áfram alla almenna bankaþjónustu sem byggir á enn hagkvæmari rekstrareiningum með áherslu á persónulega þjónustu. Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu. Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til. Starfsemi Sparisjóðanna á Íslandi annarra Spron verður með eðlilegum hætti strax við opnun sparisjóðanna í fyrramálið mánudaginn 23. mars. Þjónustustaðir um land allt verða opnir og Heimabankinn aðgengilegur.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira