deCode snýr aftur með trompi 30. júní 2009 06:00 Tvær jákvæðar fréttir af DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, urðu til þess að gengi hlutabréfa fyrirtækisins rauk upp á bandarískum markaði í gær. Fréttablaðið/Stefán
Starfsmenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa í samvinnu við sérfræðinga frá Danmörku og Hollandi uppgötvað fylgni á milli nýrnasteina og beinþynningar. Niðurstöður benda til að 60 prósent manna séu með erfðaefni sem auki líkurnar á að þeir fái nýrnasteina um 65 prósent. Líkur eru sömuleiðis á að genið valdi beinþynningu í mjöðm og mjóbaki kvenna. Vísindamennirnir hafa skrifað grein um efnið sem birt verður í næsta tölublaði fagtímaritsins Nature Genetics. Hana má nú þegar nálgast á vef tímaritsins. Þetta voru ekki einu fréttirnar sem fluttar voru af deCode í gær. Hlutabréf félagsins voru sömuleiðis endurskráð á aðallista bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq. Seint á síðasta ári kom í ljós að fyrirtækið uppfyllti ekki skilyrði fyrir skráningu á aðallista og var það flutt niður um nokkur þrep á Capital Market-lista í febrúar. Gengi hlutabréfa í deCode rauk upp um 50 prósent við fréttirnar strax á föstudag og um allt að 117 prósent þegar best lét fyrir opnun markaða í gær og stóð í 65 sentum á hlut við upphaf viðskiptadagsins. Það hafði ekki verið hærra síðan í byrjun september í fyrra. Um það leyti fór það undir einn dal á hlut í annað sinn frá skráningu á hlutabréfamarkað vestra árið 2000. - jab
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira