Kröfum 25 alþjóðalegra banka í SPRON málinu hafnað 30. september 2009 12:08
Kröfum 25 alþjóðlegra banka á hendur Seðlabankans, fjármálaráðuneytisins, Fjármálaeftirlitsins og SPRON hefur verið hafnað. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst nú fyrir hádegið á kröfu framangreindra um að vísa frá kröfum 25 alþjóðlegra banka sem kröfðust viðurkenningar á bótaskyldu vegna yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á sparisjóðnum. Í niðurstöðum dómsins segir að kröfur bankanna 25 hafi ekki verið nægilega vel reifaðar og því var málinu vísað frá dómi. Í niðurstöðum dómsins segir m.a.: "Þótt stefnendur hafi í dómkröfu sinni tilgreint tjónsatburðinn þá skortir í stefnu að þeir sýni fram á að þeir eigi lögvarða hagsmuni í málinu. Samkvæmt gögnum málsins er ekkert samningssamband á milli stefnenda og stefnda. Stefnendur segjast vera kröfuhafar SPRON, án þess að lánasamningar hafi verið lagðir fram, og án þess að SPRON hafi fengið þann lausafjárstuðning sem þeir óskuðu eftir. Að beiðni stjórnar SPRON tók Fjármálaeftirlitið SPRON yfir. Í ljósi þessa verða stefnendur að gera fullnægjandi grein fyrir þeim lögvörðu hagsmunum sem þeir telja sig eiga í málinu. Það hafa þeir ekki gert og er því um vanreifun að ræða." Málskostnaðurinn, 2 milljónir króna, fellur á bankana 25. Í þeirra hópi er fjöldi þýskra banka, þar á meðal Bayerische Landesbank, Commerzbank AG og Dresdner Bank AG. Auk þeirra eru í hópnum Seðlabanki Egyptalands og japanski bankinn Sumitomo Mitsui.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira