Byr tekur að sér greiðslumiðlun fyrir sparisjóðina 6. maí 2009 10:20
Byr sparisjóður hefur undanfarið unnið með Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands að uppbyggingu erlendrar greiðslumiðlunar fyrir Byr og aðra sparisjóði í landinu. Sparisjóðabankinn annaðist áður alla erlenda greislumiðlun sparisjóðanna. Byr hefur í framhaldi af þessu ráðið til sín 9 fyrrum starfsmenn Sparisjóðabankans til að annast þessi nýju verkefni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjóðnum þar sem jafnframt er greint frá því að Byr hafi tekið að sér að annast innlenda greiðslumiðlun fyrir aðra sparisjóði en Byr hefur um alllangan tíma séð sjálfur um eigin innlenda greiðslumiðlun í gegnum Seðlabankann. „Byr er í dag stærsti starfandi sparisjóður landsins og lá því beint við að sjóðurinn tæki að sér þessa þjónustu við sparisjóðina í landinu. Markmiðið er að viðskiptavinir sparisjóðanna verði ekki fyrir skertri þjónustu hvað varðar greiðslumiðlun innanlands en einnig var talið mikilvægt að erlend greiðslumiðlun á vegum sjálfstæðra fjármálastofnana leggðist ekki af. Því er þessi breyting stór þáttur í endurreisn íslenska fjármálakerfisins og tryggir að neytendur hafi sem fjölbreyttasta valkosti í fjármálaþjónustu," segir ennfremur. Þá segir að Sparisjóðirnir á Íslandi hafi frá upphafi haft með sér náið samstarf, m.a. í fræðslumálum starfsfólks og tæknimálum og að það hafi styrkt samkeppnisstöðu þeirra gagnvart stærri fjármálastofnunum. „Með þessari breytingu er Byr sparisjóður að stíga skref í átt að auknu samstarfi og liðsheild sparisjóðanna í landinu. Vonast Byr að geta styrkt tengsl sín enn frekar við sparisjóðina og jafnframt verið þeirra helsti bakhjarl og samstarfsaðili," segir að lokum.
Mest lesið Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira