Krónan styrkist um 40% gagnvart evru á aflandsmarkaði 15. maí 2009 12:14
Undanfarinn mánuð hefur króna styrkst um 40% gagnvart evru á aflandsmarkaði. Á sama tíma hefur gengi krónu gefið eftir um tæp 3% gagnvart evru á innlendum gjaldeyrismarkaði. Evran kostar nú u.þ.b. 200 kr. á fyrrnefnda markaðinum en ríflega 172 kr. á þeim síðarnefnda. Munurinn nemur 16% og hefur hann ekki verið minni frá því í upphafi árs. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að í millitíðinni hafa gjaldeyrishöft hérlendis hins vegar verið hert töluvert, sem að öðru jöfnu ætti að auka á einangrun þessara tveggja markaða hvors frá öðrum. Aflandsmarkaður með krónur er afar ógagnsær þar sem viðskiptin fara í mörgum tilfellum fram beint á milli kaupanda og seljanda. Þá heldur enginn einn aðili utan um heildarumfang viðskipta eða uppruna kaup- og sölutilboða. Þó má tína til ýmsa áhrifaþætti sem kunna að skýra hina miklu styrkingu krónu á aflandsmarkaði undanfarinn mánuð. Til að mynda er sá möguleiki fyrir hendi að hluti þeirra erlendu fjárfesta sem hafa fengið að skipta vaxtatekjum í krónum fyrir evrur á undanförnum mánuðum hafi kosið að fjárfesta að nýju í krónum. Þessir aðilar eiga þá viðskipti á aflandsmarkaði við aðra erlenda fjárfesta sem tilbúnir eru að selja krónueignir sínar á aflandsgenginu og njóta góðs af þeim gengismun sem er á milli markaðanna tveggja. Heildaráhrifin eru þau að gengi innanlands gefur eftir en á móti er þrýstingi á krónuna á aflandsmarkaði aflétt. Einnig er hugsanlegt að erlendir aðilar hafi þurft að afla sér króna til að standa skil á greiðslum til innlendra lánveitenda eða eigenda skuldabréfa í krónum erlendis. Þetta kann til dæmis að eiga við um einhverja skuldunauta gömlu bankanna eða útgefendur krónubréfa á gjalddaga sem höfðu reitt sig á skiptasamninga við innlenda banka til að mæta þörf sinni fyrir krónur til að greiða eigendum bréfanna. Ef krónukaup vegna krónubréfa eru verulegur þáttur í undanfarinni styrkingu gæti hún reynst skammgóður vermir, því líklegt er að endafjárfestarnir sem fá þær krónur í hendur muni selja þær aftur á aflandsmarkaði með tilheyrandi veikingu krónu á þeim markaði.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira