Starfsmenn SPRON fagna þrátt fyrir óvissu 31. mars 2009 12:26
Stefnt er að því að ljúka sölu á verðbréfaþjónustu SPRON á næstu dögum. Skilanefnd bankans komst í gær að samkomulagi við MP banka um kaup á Netbanka og útibúaneti SPRON. Formaður starfsmannafélags SPRON fagnar þeirri ákvörðun MP banka bjóða að minnsta kosti 45 starfsmönnum SPRON vinnu. Samkomulag MP banka og skilanefndar SPRON er gert með fyrirvara um samþykki fjármálaeftirlitsins. Tilboðið hljóðar upp á 800 milljónir króna en MP banki ætlar að reka áfram Netbankann og þrjú útibú undir nafni SPRON. Fram kom í máli Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP banka í fréttum Stöðvar tvö í gær að markmiðið sé að bjóða að minnsta kosti 45 starfsmönnum SPRON vinnu. Stjórn Nýja Kaupþings lagðist hins vegar gegn sölunni samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Bankinn fékk veð í eignum SPRON þegar hann tók yfir innlán viðskiptavina. Kaupþingsmenn vilja að búið sé að tryggja að allar eignir dugi fyrir innlánum áður eignir verða seldar. Töluverðar eignir eru þó enn eftir í þrotabúi SPRON. Þar á meðal útlánasafnið sem er um 200 milljarða króna virði. Þá á enn eftir að selja rekstrareiningar á borð við SPRON verðbréf, rekstrarfélag SPRON og kröfukaupaþjónustu bankans. Átta hafa lýst yfir áhuga á að kaupa SPRON verðbréf en söluviðræður hefjast í dag. Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að stefnt sé að því að leiða þær viðræður til lykta á næstu dögum. Um 130 manns unnu hjá SPRON áður bankinn var tekinn yfir. Nú lítur út fyrir að 80 starfsmenn fái vinnu hjá Kaupþingi og MP banka. Ólafur Már Svavarsson, formaður starfsmannafélags SPRON, fagnar þessari niðurstöðu en segir að óvissan sé þó enn mikil. „Í dag eru allir að fá uppsagnarbréfin sín. Svo í framhaldi af því fáum við að vita hverjir fá störf sín og hverjir þetta eru. En vissulega gleðitíðindi að merki SPRON verði haldið áfram. Mjög mikil gleðitíðindi fyrir okkur,“ sagði Ólafur Már.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira