Framsókn vildi minni hlut til Samson Andri Ólafsson skrifar 22. mars 2009 13:25 Björgólfur Guðmundsson ásamt syni keypti meirihluta i Landsbankanum árið 2002. Framsókn lagðist gegn því.
Framsóknarflokkurinn var á móti því að selja Samson hópnum meira en þriðjung í Landsbankanum haustið 2002 en hópurinn keypti 48.5 prósenta hlut ríkisins í bankanum á um ellefu milljarða nokkrum mánuðum síðar. Þetta kemur fram í gögnum nefndarinnar sem hafði umsjón með sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum en Morgunblaðið hefur öll gögn nefndarinnar undir höndum. Samson hópurinn samanstóð af feðgunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni og Magnúsi Þorsteinssyni. Fram kemur í gögnum einkavæðinganefndar að lítið hafði þokast í söluferlinu á Landsbankanum þegar Samson hópurinn sendi einkavæðinganefndinni bréf þar sem hópurinn lýsti yfir áhuga á að kaupa hlut ríkisins í bankanum. Þetta var sumarið 2002. Viðskiptaráðherra, sem þá var Valgerður Sverrisdóttir, var sent minnisblað þar sem henni er gert grein fyrir tilboðinu. Í svari hennar sagði að Samson hópurinn uppfyllti ekki þau skilyrði gerðar vour til kjölfestufjárfestis. Til að mynda var það tekið var fram að Samsonmenn hefðu enga reynslu á bankamarkaði. Í september sama ár var hins vegar ákveðið að ganga til formlegra viðræðna við Samson hópinn. Nefndarmenn í einkavæðingarnefndinni gagnrýndu þetta en meðal annars hafði komið fram það mat HBSC bankans, sem aðstoðaði ríkið við söluna á Landsbankanum, að óvenjulegt væri að ganga til viðræðna við Samson án þess að gera áræðanleika könnun eins og tíðkast. Þá var líka gagnrýnt að þegar ákveðið var að ganga til viðræðna hafði ekkert verið rætt um hvaða hugmyndir Samson menn höfðu um virði þess hluts sem þeir vildu kaupa. Einn nefndarmanna, Steingrímur Ari Arason, sagði sig úr nefndinni og sagði við það tilefni að hann hefði aldrei hafa kynnst öðrum eins vinnubrögðum. Síðar í samningaviðræðunum kom fram ágreiningur um hversu stóran hlut Samson átti að fá að kaupa. Fram komu hugmyndir um að takmarka kaup þeirra við 40%. Í minnispunktum nefndarmanna kemur fram að nokkur andstaða sé hjá Framsóknarmönnum við að Samson kaupi meira en þriðjungshlut. Björgólfur Thor brást við með því að senda Valgerði Sverrisdóttur bréf þar sem hann segir að þriðjugnshlutur sé ekki nægjanlegur í ljósi þeirra miklu fjármuna sem hópurinn hyggist koma með inn í íslenska hagkerfið. Samson hafði skömmu áður hagnast mikið á því að selja bjórverksmiðju í Rússlandi. Einni og hálfri viku eftir að Björgólfur Thor sendi Valgerði bréfið var undirritað samkomulag um að Samson mundi kaupa 48,5 hlut ríkisins í bankanum.Umsamið kaupverðið var 12,3 milljarðar sem átti að geta lækkað sem það og gerði því Samson hópurinn greiddi aldrei nema 11,2 milljarða fyrir hlut sinn í bankanum
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira