Tveir kostir í Icesave Ingimar Karl Helgason skrifar 7. ágúst 2009 12:39
Alþingismenn eiga tvo kosti í Icesave málinu, að mati lagaprófessors og hæstaréttarlögmanns: Að taka mið af lögfræðilegri stöðu Íslands og neita að samþykkja ríkisábyrgð, eða vísa málinu í samningaferli að nýju. Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögum við Háskóla Íslands, og Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmaður, rita grein um Icesave málið í Morgunblaðið í dag. Þeir hafa áður skrifað um málið og fært fyrir því rök að Icesave samkomulagið standist ekki; það er að engin ríkisábyrgð sé á Tryggingasjóði innistæðueigenda. Þeir segja að þau vandamál sem nú blasi við megi rekja til þess að ekki hafi verið leitað eftir viðeigandi ráðgjöf, innanlands sem erlendis, áður en stjórnvöld gáfu yfirlýsingar í málinu og undirrituðu svo samninga. Samningarnir sem nú liggi fyrir Alþingi beri þess tæpast merki að lögfræðileg sjónarmið, til hagsbóta fyrir Ísland, hafi náð fram að ganga. Það bendi til þess að sjónarmiðunum hafi ekki verið nægjanlega haldið fram. Engin íslensk ríkisábyrgð verði á Icesave fyrr en eftir samþykkt Alþingis. Stefán Már og Lárus segja að Alþingismenn standi nú frammi fyrir tveimur kostum. Taki þeir mið af lagalegri stöðu Íslendinga þá segi þeir nei! Sé það pólitískt mat þeirra að við verðum að semja, þá þurfi að rökstyðja það vel og síðan að vísa málinu aftur í samningaferli. Alla vega sé ljóst að samningarnir geti ekki staðið eins og þeir liggi fyrir þinginu.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira