Einn í peningastefnunefnd vildi 2-3% stýrivaxtalækkun 22. apríl 2009 16:17
Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd taldi að rétt væri að taka heldur stærra skref við síðustu stýrivaxtalækkun og lagði til að vaxtalækkunin yrði á bilinu 2,0 til 3,0 prósentustig. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar um síðustu stýrivaxtaákvörðun en fundargerðin hefur verið birt á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að nefndarmaðurinn hélt því fram að á meðan gjaldeyrishöft væru til staðar gætu mjög háir vextir veikt gengi krónunnar til skamms tíma litið með því að auka á streymi vaxtatekna á gjaldeyrismarkaðinum og einnig á næstu misserum með því að auka smám saman eignir erlendra aðila í íslenskum krónum. Þetta kallaði á lægra gengi í framtíðinni svo að nægilegur afgangur skapaðist á vöruskiptum til að mæta auknum erlendum skuldum. Jákvæð áhrif hárra stýrivaxta á gengi krónunnar, í gegnum minni leka í gjaldeyrishaftakerfinu, væru óviss þar sem óþolinmóðustu erlendu eigendur eigna í íslenskum krónum vildu losa sig við krónuna jafnvel með mjög háum vöxtum. Hvað fjármálakreppuna snerti ykju háir stýrivextir á kreppuna með því að soga lausafé út úr atvinnulífinu og hraða þar með gjaldþrotum. Raunvextir miðað við suma mælikvarða á verðbólguvæntingar væru nú þegar nokkuð háir. Vegna fjármálakreppunnar væri engin ástæða til að hafa áhyggjur af verðbólgu. Allar hækkanir á vísitölu neysluverðs endurspegluðu einfaldlega gengishreyfingar af völdum breytinga á framboði og eftirspurn eftir erlendum gjaldmiðlum. Engu að síður var þessi nefndarmaður sammála öðrum nefndarmönnum um að draga bæri varlega úr peningalegu aðhaldi og að fylgjast bæri með vaxtamun til að hvetja þolinmóðari eigendur eigna í íslenskum krónum til að halda að sér höndum. Í ljósi umræðunnar lagði seðlabankastjóri til að stýrivextir yrðu lækkaðir um 1,5 prósentur í 15,5%. Seðlabankastjóri bauð öðrum meðlimum peningastefnunefndarinnar að greiða atkvæði um tillöguna. Fjórir nefndarmenn greiddu atkvæði með tillögu seðlabankastjórans. Fimmti nefndarmaðurinn greiddi atkvæði með 2 prósentna lækkun stýrivaxta.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira