Segir Reykjanesbæ ekki hafa samið af sér Gunnar Örn Jónsson skrifar 20. ágúst 2009 16:41 Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði, er ekki sáttur við ummæli Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um að Reykjanesbær hafi samið af sér varðandi sölu Reykjanesbæjar á hlut sínum í HS Orku til Geysis Green Energy. Böðvar segir að í samningum Reykjanesbæjar við GGE sé meðal annars skýrt tekið fram að komi til útgreiðslu arðs frá HS Orku á líftíma skuldabréfsins, þá skuli arður vegna þeirra hlutabréfa sem liggja til tryggingar skuldinni greiðast inn á skuldabréfið. „Þannig er tryggt að ekki verði tekinn út arður úr félaginu án þess að jafnframt komi til innborgunar inn á skuldabréfið. Þá eru einnig ákvæði um lágmarks eiginfjárstöðu HS Orku að öðrum kosti kemur til gjaldfellingar á bréfinu. Það var því mjög vel útfært að eignaraðilar HS orku geta ekki greitt sér arð, fært til eignir eftir hentugleikum eða framkvæmt aðra gjörninga og rýrt þannig veð skuldabréfsis," segir Böðvar Jónsson. Á hann þar við eftirfarandi ummæli Sigrúnar Elsu sem birtust á Vísi fyrr í dag, þar segir Sigrún: „Það er mikið áhyggjuefni að einungis eru veð í hlutum í Hitaveitu Suðurnesja fyrir lokagreiðslum en þá hafa þessir einkaaðilar haft sjö ár til að greiða sér arð, færa til eignir eftir hentugleikum og engin trygging er fyrir því að verðmæti veðanna í HS Orku haldi verðgildi sínu, þetta er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum." Hann segist ekki sjá að Sigrún Elsa hafi neina stöðu til þess að vera að skjóta á bæjarstjórn Reykjanesbæjar í þessu máli en verra þegar verið er að skjóta slíkum skotum án þess að hafa næga þekkingu á málinu. Böðvar segir augljóst að hún hafi ekki sett sig nægilega vel inn í málið. „Að bera saman kaupverð OR á Hitaveitu Suðurnesja, á genginu 7.0 annars vegar og söluverð á HS Orku, á genginu 6,31 hins vegar, er auðvitað kolrangt, enda hefur Hitaveitu Suðurnesja verið skipt upp í tvö fyrirtæki í millitíðinni, það er HS Orku og HS Veitur." „Samanburður á gengi þessara tveggja fyrirtækja er því alls ekki samanburðarhæft nema taka tillit til þeirrar skiptingar sem fyrirtækið hefur farið í gegnum," segir Böðvar Jónsson.
Tengdar fréttir Tilboð Magma Energy er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum „Tilboð Magma Energy í HS Orku er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum en einungis hlutir í Hitaveitu Suðurnesja eru að veði fyrir fyrir lokagreiðslum Magma Energy í HS Orku. Þá hafa þessir einkaaðilar haft sjö ár til að greiða sér arð, færa til eignir eftir hentugleikum en það er engin trygging fyrir því að verðmæti veðanna í HS Orku haldi verðgildi sínu," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hún segir Reykjanesbæ hafa samið af sér. 20. ágúst 2009 12:30 Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Sjá meira
Tilboð Magma Energy er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum „Tilboð Magma Energy í HS Orku er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum en einungis hlutir í Hitaveitu Suðurnesja eru að veði fyrir fyrir lokagreiðslum Magma Energy í HS Orku. Þá hafa þessir einkaaðilar haft sjö ár til að greiða sér arð, færa til eignir eftir hentugleikum en það er engin trygging fyrir því að verðmæti veðanna í HS Orku haldi verðgildi sínu," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hún segir Reykjanesbæ hafa samið af sér. 20. ágúst 2009 12:30