Viðskipti innlent

Plastiðjan semur við Greiner Packaging

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Forsvarsmenn Plastiðjunnar á Selfossi hafa náð hagstæðum samningum við Greiner Packaging, einn stærsta matvælaumbúðaframleiðanda Evrópu, um innleiðingu og þjálfun starfsmanna Plastiðjunnar. Nýlega keypti fyrirtækið tækjabúnað af Greiner en í kjölfarið hófust umræður um víðtækara samstarf sem felst í því að starfsmenn Greiner munu annast þjálfun á búnaðinn hér heima og sinna viðhaldi hans. Einn starfsmaður fyrirtækisins er þegar kominn til landsins í því skyni og annar væntanlegur í byrjun ágúst. Verður Plastiðjan að einhverju leyti söluaðili á Íslandi fyrir Greiner.

Plastiðjan er stofnuð árið 1973 og hefur frá upphafi verið fjölskyldufyrirtæki. „Við vorum aðalþjónustuaðili Ölgerðarinnar í 14 ár og sáum um allt þeirra flöskuplast auk þess sem við höfum þjónustað alla íslenska vatnsútflytjendur," segir Axel Óli Ægisson framkvæmdastjóri. Hann segir áherslur fyrirtækisins nú vera að breytast með þeim hætti að framvegis verði ætlunin að leggja mörgum aðilum til hvort tveggja lítið og mikið vörumagn í stað þess sem áður tíðkaðist en þá voru viðskiptavinirnir færri en magnið meira til hvers þeirra.

Axel segir mjólkur- og drykkjarafurðaílát vera nýja línu í framleiðslunni og séu tækifærin næg með samstarfinu við Greiner Packaging, þar á meðal umbúðir um efnavörur, snyrtivörur og hvers kyns matvæli. Hans Adolf Hjartarson, fjármálastjóri Plastiðjunnar, segir að með nýju tækjunum muni fyrirtækið geta annað spurn allra íslenskra aðila eftir hvers kyns plastumbúðum. „Við sjáum líka möguleika í útflutningi á þessum afurðum, sérstaklega í ljósi þess hve veik krónan er núna," útskýrir Hans og bætir því við að launa-, rafmagns- og framleiðslukostnaður sé hlutfallslega lágur hér heima um þessar mundir miðað við meginland Evrópu. „Við horfum einkum á innanlandsmarkaðinn núna en í framhaldinu munum við skoða erlenda markaði af fullri alvöru," segir hann.

Plastiðjan hefur nýlega í samstarfi við Nýja Landsbanka lokið við að fjármagna þá stækkun fyrirtækisins sem stendur fyrir dyrum. Nú starfa 10 manns hjá Plastiðjunni en þeir Axel Óli og Hans segjast allt eins eiga von á því að sá fjöldi tvöfaldist með þeim byr sem kominn sé í seglin með samstarfinu við Greiner.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×