Kaupin á Spron í uppnámi vegna Nýja Kaupþings 6. apríl 2009 12:34 Margeir Pétursson er stjórnarformaður MP Banka.
Samkomulagið um kaup MP banka á útibúaneti Spron fyrir 800 milljónir króna er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur þegar veitt MP banka undanþágu til að hefja starfsemi en samþykki Fjármálaeftirlitsins liggur ekki fyrir. Því varð að fresta opnun þriggja útibúa Spron, sem fyrirhuguð var í dag. Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka, segir í Fréttablaðinu í dag að kaup MP banka á útibúanetinu sé í uppnámi vegna aðgerða Kaupþings til að hindra þau. Þar með sé ráðning bankans á 45 fyrrverandi starfsmönnum Spron einnig í uppnámi. Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Seðlabanki Íslands óttist að áhlaup verði gert á Kaupþing sem bankinn myndi ekki ráða við ef MP banki kaupi útibúanetið, en fyrrverandi viðskiptavinir Spron voru fluttir til Kaupþings og búist er við að stór hluti þeirra muni flytja viðskipti sín aftur yfir í útibú Spron. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Kaupþings, segir það af og frá að bankinn sé að reyna að hindra kaupin. Stjórnvöld hafi farið fram á það við Kaupþing að bankinn tæki við innistæðum fyrrverandi viðskiptavina Spron til að tryggja að þær væru á öruggum stað. Því hafi Kaupþingi þótt eðlilegt að gengið væri frá skuldabréfi til bankans áður en hafist væri handa við að selja eignir Spron, því með flutningi á innistæðum Spron sé Kaupþing orðinn stærsti kröfuhafi sparisjóðsins. Gert er ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið fundi í dag og að niðurstaða í málinu liggi fyrir seinnipartinn.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira