Gera alvarlegar athugasemdir við skattabreytingar 10. desember 2009 12:08
Ýmis samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við boðaðar skattabreytingar stjórnvalda. Telja þau að breytingarnar hafi í för með sér ýmislegt óhagræði og aukinn kostnað.Fjallað er um málið á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins (SA) en þau ásamt Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fiskvinnslustöðva, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu, hafa sent Alþingi ítarlega umsögn um fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar þar sem gerðar eru fjölmargar alvarlegar athugasemdir og þau vinnubrögð sem viðhöfð eru gagnrýnd harðlega.Hagsmunaaðilar fengu aðeins örfáa daga til að kynna sér efni frumvarpsins sem hefur að geyma mjög róttækar breytingar á íslenska skattkerfinu.Í umsögninni segir m.a.:„Þær breytingar sem í frumvarpinu felast á skattamálum fyrirtækja fela í sér ýmislegt óhagræði og hafa aukinn kostnað í för með sér fyrir fyrirtækin. Þá mun kostnaður skattyfirvalda aukast verulega vegna breytinga á tölvukerfum og eftirlits með flóknara skattkerfi, eins og fram kemur í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins um frumvarpið.Þegar grundvallar breytingar á skattalegu umhverfi fyrirtækja eru fyrirhugaðar er óverjandi annað en að meta einnig kostnað fyrirtækja og áhrif á atvinnulífið. Þá ætti það að vera grundvallarforsenda að hafa náið samráð við sérfróða aðila þegar svo flóknar og umfangsmiklar breytingar eru gerðar á skattalegu umhverfi fyrirtækja og raun ber vitni."Hægt er að sjá umsögnina í heild á vefsíðu SA.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira