Umfjöllun: KR enn ósigrað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2009 20:39 Margrét Kara Sturludóttir í leiknum í kvöld. Mynd/Stefán
KR er enn ósigrað í Iceland Express deild kvenna í körfubolta eftir sigur á Grindavík á heimavelli í kvöld, 81-56. Grindavík var fyrir leikinn búið að vinna fjóra leiki í röð en þær áttu aldrei möguleika í kvöld. Staðan í hálfleik var 38-28, KR í vil. KR byrjaði mjög vel í leiknum, lék sterka vörn og beitti hröðum sóknum sem Grindvíkingar réðu ekkert við. Fljótlega náði KR undirtökunum í leiknum og lét forystuna aldrei af hendi eftir það. Grindvíkingar voru talsvert frá sínu besta í sínum sóknarleik en það lagaðist í öðrum leikhluta þegar þeir fóru að spila ákveðinn varnarleik sem kom KR í nokkuð opna skjöldu. En í seinni hálfleik tóku KR-ingar aftur öll völd á vellinum og juku muninn jafnt og þétt. Grindavík hóf fjórða leikhluta með því að setja niður tvö þriggja stiga skot og minnka muninn í ellefu stig en þá fór KR á 12-0 sprett og gerði endanlega út um leikinn. Signý Hermannsdóttir átti mjög góðan leik, sérstaklega í vörninni en hún lét einnig mikið af sér kveða í sókninni. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Margrét Kara Sturludóttir voru einnig mjög áberandi í liði KR og spiluðu mjög vel. Hjá Grindavík voru þær Petrúnella Skúladóttir og Jovana Lilja Stefánsdóttir í fyrirrúmi.
Dominos-deild kvenna Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira