Ánægður með aðkomu AGS 6. september 2009 14:27 Joseph Stiglitz
Joseph Stiglitz nóbelsverðlaunarhafi og hagfræðiprófessor segir krónuna hafa hjálpað Íslandi mikið í kreppunni. Hann er að mörgu leyti ánægður með aðkomu Aþjóðagjaldeyrssjóðnum hér á landi og lítur á Ísland sem fórnarmlamb í kreppunni sem þurfi að hjálpa. Stiglitz var gestur í Sílfri Egils á Rúv. Stiglitz er kominn hingað til lands meðal annars til þess að ræða við ráðamenn þjóðarinnar og sagðist hann hlakka mjög til þeirra funda. Sitglitz vann skýrslu um Ísland árið 2001 fyrir Seðlabanka Íslands þar sem hann varaði við fasteignabólunni sem væri að myndast hér á landi. Stiglitz hefur í gegnum árin gagnrýnt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn en hann sagði sjóðinn vera að gera hluti hér á landi sem væru að mörgu leyti mun betri en í öðrum löndum sem sjóðurinn hefur aðstoðað. Við fengjum mikið svigrúm til þess að leysa okkar mál sjálf sem hann sagði mikilvægt. Einnig sagði hann mikilvægt að stýrivextir væru háir hér á landi á meðan krónan væri jafn veik og raun ber veitni. Hann sagði þó að þrátt fyrir veikt gengi krónunnar væri krónan heilt yfir að hjálpa okkur mikið. Hann sagði lítil hagkerfi þurfa svigrúm, sérstaklega þegar þau yrðu fyrir áfalli eins og nú. Ef að krónan hefði ekki farið niður líkt og hún gerði hefði til dæmis ferðamannabransinn ekki blómstrað jafnmikið og í sumar og atvinnuleysið hefði líklega orðið meira. Aðspurður um Icesaveskuldbindingarnar sem íslenska þjóðin hefur nú tekið á sig sagði hann stjórnvöld hér á landi vissulega hafa gert mistök. Það hefðu hinsvegar stjórnvöld í Bretlandi einnig gert og þau bæru ábyrgð gagnvart sínum þegnum. Hann sagði að líklega hefði ekki verið samið á alveg sanngjarnan hátt. Hann var síðan spurður hvort það væri rétt að ríkisstjórnin hér á landi hefði haft samband við hann rétt eftir að allt hrundi. „Ég talaði við ýmsa, en ég er alltaf að tala við fólk allsstaðar og ræða ólíkar skoðanir." Aðspurður hvort hann hefði áhuga á að koma hingað til lands og verða ráðgjafi ríkisstjórnarinnar sagðist hann vera til í að hjálpa eins mikið og hann gæti. „Ég held að Ísland sé saklaust fórnarlamb, kannski ekki alveg saklaust, en fórnarlamb frjálsa markaðarins sem rústaði líka öllu í Bandaríkjunum og Bretlandi. Ég held að allir vilji hjálpa smáum þjóðum svo þær þjáist ekki óþarflega mikið."
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Sjá meira