Segir annan eiganda Tals hafa haldið sér nauðugri Stígur Helgason skrifar 28. febrúar 2009 00:01 Ragnhildur Ágústsdóttir
Ragnhildur Ágústsdóttir, sem á fimmtudag var vikið úr starfi sem forstjóri Tals, hefur kært Jóhann Óla Guðmundsson, annan aðaleiganda Tals, og lögmann hans fyrir frelsissviptingu. Hún fullyrðir að þeir hafi haldið sér nauðugri í fundarherbergi í höfuðstöðvum Tals í hátt í klukkustund og látið taka farsímanúmer hennar úr sambandi. Jóhann og lögmaður hans komu í höfuðstöðvarnar á fimmtudag ásamt Hermanni Jónassyni, sem var forstjóri Tals á undan Ragnhildi, viku Ragnhildi úr starfi og settu Hermann forstjóra í hennar stað. Á meðan Hermann kynnti ákvörðunina fyrir starfsmönnum segir Ragnhildur að hinir tveir hafi haldið sér nauðugri í fundarherbergi til þess að hún myndi ekki trufla fundinn. Jóhann Óli hefur neitað ásökuninni. Ragnhildur vill ekkert tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var hún mjög slegin vegna þess sem gerðist og kærði málið til lögreglu síðdegis á fimmtudag. Lögregla mun hafa málið til skoðunar og lítur það alvarlegum augum, samkvæmt heimildum blaðsins, ekki síst í ljósi þess að Ragnhildur er barnshafandi. Harðvítug átök hafa staðið á milli forsvarsmanna eigenda Tals, Teymis annars vegar og IP fjarskipta, í eigu Jóhanns Óla, hins vegar.
Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu Viðskipti innlent Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira