Kröfuhafar afar ósáttir við háan rekstrarkostnað Exista Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 13. ágúst 2009 18:50 Frá aðalfundi Exista 2008. Mynd/Anton Brink
Rekstrarkostnaður Existu hleypur enn á hundruðum milljóna króna og eru til að mynda tveir forstjórar starfandi hjá félaginu. Kröfuhafar, með Landsbankann í broddi fylkingar, munu vera ósáttir við þetta og krefjast þess að stjórnendur félagsins fari að sínum hugmyndum, að öðrum kosti verði félagið sett í þrot. Exista hefur verið umfangsmikið fjárfestingarfélag í íslensku viðskiptalífi. Eignir þess voru um tíma verðmætar og voru helstar Lífís, VÍS, Lýsing, Skipti, Sampo, Kaupþing, Bakkavör og Storebrand. Eignasafnið hefur þó rýrnað töluvert á undanförnum mánuðum og voru til að mynda finnska fjármálafyrirtækið Sampo og norska tryggingarfélagið Storebrand seld með hundruð milljarða króna tapi. Síðustu mánuði hafa stjórnendur Exista staðið í samningaviðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu félagsins. Fimmtán starfsmenn eru starfandi hjá félaginu, þar af tveir forstjórar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hleypur rekstrarkostnaður félagsins enn á hundruðum milljóna króna og við það eru kröfuhafar með skilanefnd Landsbankans í broddi fylkingar ósáttir. Skilanefndin gjaldfelldi í lok júlí kröfur á félagið að fjárhæð 27 milljarða króna. Stjórnendur Exista hafa farið fram á að gjaldfellingin verði afturkölluð en það hefur ekki verið samþykkt. Heimildir herma að næstu skref skilanefndarinnar verði að fara fram á kyrrsetningu sem er þá grundvöllur fyrir gjaldþrotaskiptabeiðni. Sigurður Nordal, talsmaður Exista, sagði í samtali við fréttastofu að félagið hefði unnið að endurskipulagningu útfrá mati sem endurskoðendafyrirtækið KPMG hafi gert á greiðslugetu félagsins til framtíðar. Það hafi verið gert í samstarfi við erlenda kröfuhafa, viðhorf innlendra kröfuhafa hafi aftur á móti verið með öðrum hætti.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira