Landsvirkjun gæti losað um 50 milljarða í krónubréfum 4. maí 2009 15:24
Landsvirkjun gæti komið um 50 milljarða kr. virði af krónu/ríkisbréfum í eigu erlendra aðila í lóg ef allt gengi að óskum. Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir að áhugi sé af hálfu bæði Landsvirkjunar og erlendra eigenda krónubréfa að kanna mögulega skuldabréfaútgáfu til nokkurra ára. Krónubréfaeigendur keyptu þá bréfin með krónum en Landsvirkjun greiddi lánið til baka í dollurum þegar þar að kemur. Fram kemur í máli Þorsteins að óformlegar þreifingar hafi verið í gangi milli Landsvirkjunar og hinna erlendu eigenda. Raunar hafi Landsvirkjun unnið að málinu frá því fyrir áramót en leggi áherslu á að það sé unnið í samvinnu við íslensk stjórnvöld. Talan 50 milljarðar kr. er fengin þannig að endurfjármögnunarþörf Landsvirkjunar árið 2011 er á bilinu 150 til 200 milljónir dollara. Og ef farið verður í þá virkjunarframkvæmd sem liggur beinast við, Búðarhálsvirkjun, myndi kostnaður við hana nema um 200 milljónum dollara. Miðað við gengi dollarans í dag gera þetta samtals um 50 milljarða kr. „Við teljum svona skuldabréfaútgáfu áhugaverðan möguleika því þetta gæti verið hagstæð leið fyrir okkur að afla lausafjár," segir Þorsteinn. „Enda höfum við kíkt á málið frá því fyrir síðustu áramót." Fram kemur í máli Þorsteins að þeir viti til þess að áhugi sé til staðar hjá erlendum eigendum krónubréfa að losa sig úr þeim stöðum með því að semja við íslensk fyrirtæki/félög sem hafa tekjur í erlendri mynt eins og Landsvirkjun gerir. „Við höfum fengið fyrirspurnir að utan og erum að skoða þessi mál af fullri alvöru," segir Þorsteinn.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira