Þriggja mánaða verðbólga í núllið 18. apríl 2009 03:00 Verði krónan viðlíka veik áfram og síðustu daga hægir á hjöðnun verðbólgu að mati IFS Greiningar. Fréttablaðið/Anton
Gangi eftir verðbólguspá IFS greiningar fyrir aprílmánuð lækkar 12 mánaða verðbólga í 11,5 prósent og hefur þá ekki verið lægri frá í mars í fyrra. Spáin hljóðar upp á 0,1 prósents hækkun vísitölu neysluverðs milli mánaða. „Í mars mældist mesta verðhjöðnun í einstökum mánuði í yfir 20 ár. Ef að spá okkar gengur eftir er 3 mánaða verðbólga núll prósent og hækkun vísitölu neysluverðs frá áramótum aðeins 0,6 prósent,“ segir í spánni sem IFS Greining sendi frá sér í gær. „Samkvæmt verðkönnun okkar hækkaði verð á matvælum um eitt prósent í apríl sem hefur 0,12 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar. Aðallega virðist verð á innfluttum matvælum hafa hækkað auk þess sem að páskasteikin virðist hafa hækkað nokkuð.“ Fram kemur að kjötvörur hækki oftast fyrir stórhátíðir. Þá er eldsneytisverð sagt hafa tekið nokkurn kipp samhliða lægra gengi krónunnar og hækkað um fimm prósent frá síðustu mælingu. „Á móti hækkun á matvælum og eldsneyti vegur lækkun á fasteignaverði,“ segir IFS greining en í síðasta mánuði lækkaði reiknuð húsaleiga um 5,1 prósent. „Við búumst ekki við jafn mikilli lækkun nú og í síðasta mánuði og spáum fjögurra prósenta lækkun.“ Þá kemur fram að verð á fatnaði virðist hafa hækkað á milli mánaða í kjölfar útsöluloka og er sú hækkun sögð hafa 0,15 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs. Spáð er áframhaldandi hraðri verðbólguhjöðnun, en hraði hennar ráðist af gengi krónunnar. „Ef gengi krónu verður veikt áfram mun það á endanum hafa víðtækari áhrif á verðlag en nú þegar er orðið. Lækkun verðbólgu gæti því orðið hægari en ef gengi krónunnar hefði haldið sér á þeim slóðum sem það var í byrjun mars.“
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira