Raungengi krónunnar nálægt sögulegu lágmarki 7. júlí 2009 17:04 Raungengi krónunnar nálgast sögulegt lágmark.
Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um rúm 10% á milli ársfjórðunga á öðrum ársfjórðungi en á fyrsta fjórðungi ársins hækkaði raungengi um 12%. Raungengi í júní stóð hinsvegar um 20% veikar en í júní á síðasta ári og er nú nálægt sögulegu lágmarki. Þetta kemur fram í hagsjá Landsbankans í dag. Raungengi er mælikvarði á þróun kaupmáttar íslenskrar krónu að teknu tilliti til verðbólgu innanlands og utan. Ein leið til að skilgreina raungengi er að veikara raungengi þýðir að framleiða þyrfti meira á Íslandi til þess að kaupa sömu körfu af vörum að utan, en að sama skapi er íslensk framleiðsla þá orðin ódýrari fyrir útlendinga. Allt síðasta ár féll raungengi krónu, um 40% frá árslokum 2007 til ársloka 2008. Á tímabilinu desember 2008 til febrúar 2009 styrktist það hinsvegar um 20%, en þá ber að hafa í huga að gildið í nóvember var lægsta sögulega gildi vísitölunnar. Sú styrking raungengisins hefur hinsvegar gengið til baka nær að fullu og var raungengið í júní aðeins 1 prósenti yfir gildinu í nóvember. Ef nánar er að gáð má skrifa veikingu raungengisins frá því í september nær alfarið á fall krónunnar, það er að segja nafngengis hennar. Hlutfallslega meiri verðbólga hér á landi en í grannríkjunum hefur orðið til að halda lítillega aftur af veiking raungengisins. Í veikara raungengi er þó fólgin jákvæð fregn þar sem samkeppnisstaða íslensks útflutnings hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Lágt raungengi þýðir að útflutningsgreinar og ferðamannaiðnaður getur skapað meiri gjaldeyristekjur þrátt fyrir að verðlag innanlands kunni að hafa hækkað. Þar sem innflutt vara hækkar jafnframt í verði ætti að draga úr eftirspurn eftir henni og meiri afgangur verður því á viðskiptum við útlönd. Þetta er í samræmi við þær tölur sem birst hafa að undanförnu um þróun vöruskiptajafnaðar við útlönd.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira