Frumvarp um innistæðutryggingar sveiflaði skuldabréfamarkaðinum 4. desember 2009 08:00
Hagfræðideild Landsbankans telur að miklar sveiflur á skuldabréfamarkaðinum í gærdag megi líkast til rekja til frumvarps efnahags- og viðskiptaráðherra til laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sem gert er ráð fyrir að taki gildi um áramótin.Samkvæmt frumvarpinu verður hámark á tryggingu innstæðueigenda miðað við 50 þúsund evrur verði það óbreytt að lögum. Þetta yrði því töluverð breyting frá núverandi aðstæðum þar sem þrjár ríkisstjórnir hafa nú gefið út yfirlýsingar um að allar innstæður séu tryggðar að fullu.Fjallað er um málið í Hagsjá hagfræðideildarinnar. Þar er greint frá því að mikil velta var á skuldabréfamarkaði í gær og lækkaði ávöxtunarkrafa allra flokka sem viðskipti voru með. Heildarvelta var 19,8 milljarðar kr. og þar af voru 19,4 milljarðar kr. með markflokka, það er ríkis- og íbúðabréf.Ávöxtunarkrafa þeirra lækkaði um 6 - 48 punkta, mest á styttri bréfunum. Krafa stysta íbúðabréfsins, HFF 14, lækkaði þannig um 48 punkta og endaði í 2,62% en mest viðskipti voru með þetta bréf.Haft er eftir aðstoðarmanni forsætisráðherra á vefsíðunni www.visir.is að þrátt fyrir frumvarpið standi yfirlýsingar núverandi ríkisstjórnar um innstæðutryggingar. Þær standi á meðan annað komi ekki fram og að engin tímamörk séu í því sambandi.Samkvæmt þessu skaut skuldabréfamarkaðurinn ef til vill yfir markið í dag og má jafnvel búast við einhverri leiðréttingu í dag. Hins vegar verður að teljast afar bagalegt að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp um svo mikilvægt mál án þess að ítreka yfirlýsingu sína, sé raunin sú að hún haldi.Jafnframt má draga í efa að nóg þyki að aðstoðarmaður ráðherra ítreki hana við einn fréttamiðil til þess að yfirlýsingin haldi gildi sínu. Þegar fram kemur stjórnarfrumvarp sem er á skjön við fyrri yfirlýsingar ríkisstjórnar er auðvelt að geta sér til um að áherslur hafi tekið breytingum. Viðbrögð á skuldabréfamarkaði í dag sína að minnsta kosti að upplýsingagjöf hafi verið ábótavant að þessu sinni.Í nýlegri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika er sérstaklega vikið að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og tekið fram að hún hafi áhrif á val fjárfesta og innstæðueigenda á fjárfestingarkostum. Þannig geti afnám hennar, ef óvarlega er farið, haft neikvæð áhrif á fjármögnun fjármálastofnana þar sem þær eru við núverandi aðstæður að mestu fjármagnaðar af innlánum.Jafnframt er vikið að því hvernig sé hentugt að haga málum þegar dregið er úr yfirlýsingunni til þess að koma í veg fyrir að slíkt gerist. Meðal annars er sagt að eyða þurfi óvissu um lagatúlkun innstæðutryggingasjóðs og efla eftirlitsstofnanir.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira