Forstjóri Steypustöðvarinnar vísar ásökunum á bug 1. maí 2009 16:24 Hannes Sigurgeirsson, forstjóri Steypustöðvarinnar.
Hannes Sigurgeirsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, vísar ásökunum Víglunds Þorsteinssonar stjórnarformanns BM Vallár sem hann lét falla í fréttum Stöðvar 2 í gær, til föðurhúsanna. Víglundur benti á það í gær að forstöðumaður lánaeftirlits Íslandsbanka sé jafnframt stjórnarformaður Steypustöðvarinnar. Að minnsta kosti tvö dæmi eru fyrir því að sögn Víglunds að viðskipti hafi verið færð frá BM Vallá til Steypustöðvarinnar fyrir tilstilli Íslandsbanka. Hannes segir hinsvegar í yfirlýsingu sinni að stjórn og eigendur Steypustöðvarinnar hafi á engan hátt haft afskipti af einstaka viðskiptavinum eða reynt að hafa áhrif á viðskiptasamninga sem Steypustöðin hefur gert við viðskiptavini sína. „Starfsmenn Steypustöðvarinnar hafa með öflugri þjónustu og hágæða vörum byggt upp gott og ábyggilegt fyrirtæki sem rekið er í samkeppni við önnur viðlíka fyrirtæki á markaðnum og hafa náð mjög góðum árangri á sínu sviði," segir hann. Að mati Hannesar er vissulega mikilvægt að huga að samkeppnisumhverfi fyrirtækja í þeim efnahagsþrengingum sem nú dynja yfir íslenskt atvinnulíf. „Það er því miður staðreynd að beinir hagsmunir íslenskra banka inn í fyrirtækjum í dag hafa þróast með öðrum hætti en fyrirséð var og æskilegt er. Ég geri ráð fyrir að BM Vallá sé þar engin undantekning," segir hann og bætir við að hann telji eðlilegt að fyrirtæki keppi um hylli viðskiptavina með góðri þjónustu og samkeppnishæfu verðlagi en ekki dylgjum í garð samkeppnisaðila. „Það borgar sig nefnilega ekki að kasta grjóti ef maður býr í glerhúsi," segir Hannes Sigurgeirsson að lokum.
Tengdar fréttir Ríkisbankarnir hygla fyrirtækjum í þeirra eigin eigu Dæmi eru um að ríkisbankarnir hafi milligöngu um óeðlilega fyrirgreiðslu til fyrirtækja í þeirra eigin eigu og háttsettir bankastarfsmenn sitji beggja vegna borðs við afgreiðslu mála. Þetta er engan veginn í lagi, segir stjórnarformaður BM Vallár, sem telur samkeppnisstöðu fyrirtækja verulega skekkta. 30. apríl 2009 19:08 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira
Ríkisbankarnir hygla fyrirtækjum í þeirra eigin eigu Dæmi eru um að ríkisbankarnir hafi milligöngu um óeðlilega fyrirgreiðslu til fyrirtækja í þeirra eigin eigu og háttsettir bankastarfsmenn sitji beggja vegna borðs við afgreiðslu mála. Þetta er engan veginn í lagi, segir stjórnarformaður BM Vallár, sem telur samkeppnisstöðu fyrirtækja verulega skekkta. 30. apríl 2009 19:08