Innlent

Kosið verður aftur um stækkun í Straumsvík

Mynd úr safni

Nægum fjölda undir­skrifta hefur verið safnað í Hafnar­firði til að kjósa verði aftur um deiliskipulagstillögu Alcan. Hún gerir ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Fjórðungur bæjarbúa á kjörskrá þarf að krefjast atkvæðagreiðslunnar samkvæmt reglum bæjarins og hefur athugun bæjarstarfsmanna á undirskriftalistanum, sem var fullkláraður í sumar, leitt í ljós að hann fullnægir öllum skilyrðum.

Á fundi bæjarráðs síðasta fimmtudag var samþykkt að fela starfsmönnum skipulags- og byggingasviðs „að taka upp viðræður við stjórnendur álversins um stöðu umrædds deiliskipulags og önnur þau atriði sem lúta að útfærslu þess," að því er segir í fundargerð.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að boltinn sé nú hjá stjórnendum Rio Tinto Alcan. Deiliskipulagið sé þeirra og nú þurfi að athuga hug þeirra til þess á ný. „Eru þeir í sömu stöðu og fyrir tveimur árum og óska eftir að fara með þessa tillögu fram vegna mögulegrar stækkunar eða hefur eitthvað breyst í þeim efnum?" spyr Lúðvík.

Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan, segir hins vegar að reglurnar um atkvæðagreiðslu af þessu tagi séu skýrar: Ef undirskriftir berist frá fjórðungi bæjarbúa á kjörskrá beri að halda atkvæðagreiðsluna. Það sé alls ekki háð vilja Alcan.

Aldrei hafi borist neitt formlegt svar frá bæjaryfirvöldum við umsókn Alcan um byggingarleyfi, heldur aðeins verið litið á niðurstöðu fyrri atkvæðagreiðslunnar sem ígildi neitunar. Því megi líta svo á að umsóknin standi enn.

„Ef vilji reyndist fyrir því í bænum að leyfa þessa framkvæmd myndum við örugglega skoða sérstaklega hvort það væri möguleiki og þá hvenær," segir Ólafur. „En það verður ekkert skoðað fyrr en fyrir liggur hvort vilji er fyrir því í bænum."

Lúðvík segir ómögulegt að segja til um það að svo stöddu hvenær atkvæðagreiðsla gæti farið fram, en reglum samkvæmt þurfi hún að fara fram innan við tveimur mánuðum eftir að bæjarstjórn ákveði að ráðast í hana. Heimildir Fréttablaðsins herma að nú sé litið til þess að atkvæðagreiðslan gæti farið fram samhliða sveitarstjórnar­kosningum næsta vor. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×