DeCode glímir við alvarlegan fjárskort 2. apríl 2009 05:00 Kári Stefánsson. DeCode átti 3,7 milljónir dala um áramótin en seldi skuldabréf fyrir ellefu til viðbótar í janúar. Unnið er að fjármögnun fyrirtækisins.
Laust fé deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, dugar í mesta lagi næstu þrjá mánuði. Þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins sem birt var í fyrrakvöld. Óvíst er hvað tekur við en unnið er að fjármögnun félagsins. Fyrirtækið tapaði 80,9 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 9,7 milljarða íslenskra króna í fyrra. Þetta er 14,6 milljónum dala betri afkoma en í hittiðfyrra. Tap á fjórða ársfjórðungi nam átján milljónum dala samanborið við 32,4 milljóna dala tap ári fyrr. Laust fé og innistæður fyrirtækisins námu 3,7 milljónum dala, tæpum hálfum milljarði króna, um áramótin. Ári fyrr átti það 64,2 milljónir dala. Fyrirtækið seldi Landsbankanum safn skuldabréfa fyrir ellefu milljónir dala í janúar og hefur nýtt andvirðið til rekstrar. Ljóst er að fjármunir hafa brunnið hratt upp og að fyrirtækið hafi aðeins fjármagn fram á yfirstandandi fjórðung. Haft er eftir Kára í uppgjörinu að stjórn fyrirtækisins hafi unnið að uppstokkun, svo sem eignasölu og viðræðum við lánardrottna til að tryggja fjármögnun félagsins. Ekki náðist í Kára þegar eftir því var leitað í gær.- jab
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Viðskipti innlent Novo hættir að vera Nordisk Viðskipti erlent Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Sjá meira