Peningastefnunefndin var einhuga 2. apríl 2009 23:13 Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, er formaður peningastefnunefndar bankans. MYND/Anton Brink
Peningastefnunefnd Seðlabankans var einhuga um að fara sér tiltölulega hægt í upphafi vaxtalækkunarferlisins og lækka stýrivexti úr 18% í 17% 19. mars. Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, bauð öðrum meðlimum peningastefnunefndarinnar að kjósa um tillöguna og samþykkti nefndin hana einhuga. Næsti vaxtaákvörðunarfundur verður 8. apríl. Peningastefnunefndin var sammála um að hægfara skref væru réttlætanleg vegna þeirrar óvissu sem ríkti um samspil vaxta og gengis og viðkvæms efnahags fyrirtækja, heimila og banka. Einnig var bent á að óvenju mikil óvissa ríkti um horfurnar. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndarinnar en hún var birt á vef Seðlabankans í kvöld. Nefndin lagði áherslu á að nauðsynlegur þáttur í þeirri viðleitni að endurreisa þjóðarbúskapinn væri að leggja grunn að heilbrigðu fjármálakerfi. „Hún taldi mikilvægt að „nýju" og „gömlu" bankarnir yrðu endurskipulagðir hratt og vel. Nefndin áleit einnig mikilvægt að bankarnir gerðu ráðstafanir til að styrkja eiginfjárgrunn sinn með stuðningi frá kröfuhöfum, eigendum og stjórnvöldum. Það bæri að gera þannig að ríkið taki ekki á sig tap einkageirans vegna bankakreppunnar umfram það sem orðið er," segir í fundargerðinni. Formaður peningastefnunefndarinnar er Svein Harald Øygard, Seðlabankastjóri og fulltrúar Seðlabanka Íslands í nefndinni eru auk hans Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Auk þeirra eiga Anne Sibert, Dr. í hagfræði og prófessor við Birkbeck College, University of London, Gylfi Zoega, Dr. í hagfræði og prófessor við Háskóla Íslands einnig sæti í nefndinni. Fundargerð peningastefnunefndar bankans er hægt að lesa hér.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Alþjóðleg bragðáhrif verða sífellt vinsælli Lífið samstarf Fleiri fréttir Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Sjá meira