Milljarðarnir skrifast á Björgólf 2. apríl 2009 04:15 Björgólfur Guðmundsson
Auknar skuldir bankaráðsmanna Landsbankans og félaga tengdra þeim í hálfsársuppgjöri bankans í fyrra eru að nær öllu leyti tilkomnar vegna kaupa Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðsins, á helmingshlut Sunds í fjárfestingarfélaginu Gretti fyrir tveimur árum. Fram kom í Markaðnum í gær að skuldir bankaráðsmanna Landsbankans og félaga tengdra þeim jukust úr 9,9 milljörðum króna árið 2007 í tæpa fimmtíu milljarða í fyrra. Kaup Björgólfs skýra 37 milljarða en gengisáhrif þrjá milljarða króna. Grettir átti 33 prósent í Eimskipi og rúm 28 prósent í Icelandic Group og færðust skuldbindingar félaganna gagnvart bankanum frá fyrri árum yfir á félög tengd bankaráðsformanninum. Ekki var um nýjar lánveitingar að ræða. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gekk Björgólfur sjálfur í ábyrgð fyrir skuldbindingum auk þess sem bankinn hafði veð í eignarhlut Björgólfs í Gretti. Grænt ljós var gefið á viðskiptin í bankaráðinu enda talið að þau gætu styrkt félög í eigu Grettis. Unnið er að innheimtu krafna á hendur bankaráðsmönnum og félögum þeim tengdum. Óvíst er með heimtur þar sem mörg félög tengd bankaráðsmönnum standa illa. „Því miður hefur þróunin verið til verri vegar hjá mörgum,“ sagði einn viðmælenda Fréttablaðsins í gær.- jab
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira