Hertar reglur loka hjáleið 2. apríl 2009 04:30 Friðrik j. arngrímsson
Hertari gjaldeyrisreglur styrkja gengi krónunnar. Stutt síðan LÍÚ heyrði af leiðum framhjá gjaldeyrishöftum. Íslandsbanki segir erfitt að girða fyrir allar hjáleiðir. „Það er mikilvægt að sömu reglur gildi fyrir alla. Við styðjum gjaldeyrishöftin ef þau styrkja gengið og ná vöxtum og verðbólgu niður,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands útgerðarmanna (LÍÚ). Alþingi samþykkti í fyrrakvöld að breytingu á gjaldeyrisreglum sem fela í sér að útflutningsviðskipti verða að fara fram í erlendri mynt. Fyrir breytinguna tíðkaðist í einhverjum mæli að erlendir fjárfestar keyptu krónur á erlendum mörkuðum, sem voru allt að þrjátíu prósent lægri en skráð miðgengi Seðlabankans. Greitt var fyrir með íslenskum krónum og uppskáru erlendir kaupendur því umtalsverðan gengishagnað. Erlendur gjaldeyrir skilaði sér því ekki heim vegna útflutnings. Viðskipti sem þessi voru ekki brot á reglum um gjaldeyrisviðskipti. Friðrik segir það hafa komið sér á óvart að hægt var að fara framhjá skilaskyldu á gjaldeyri með þessum hætti. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hversu háar upphæðir hafi farið framhjá gjaldeyrishöftunum í viðskiptunum. Ótrúlegt er að ekki hafi verið gert ráð fyrir þessum möguleika, að sögn Friðriks. Gengi krónunnar styrktist um 2,11 prósent í mjög litlum viðskiptum í gær og endaði gengisvísitalan í 208,50 stigum. Hún hafði áður veikst viðstöðulaust um tæp tólf prósent á þremur vikum. Greining Íslandsbanka segir að með viðbótinni sé barið í augljósasta brest gjaldeyrishaftanna. Líkur séu á að gengi krónunnar styrkist fyrsta kastið. Þó sýni reynslan að ávallt sé reynt að fara fram hjá slíkum höftum og erfitt að girða fyrir allar hjáleiðir. Þó gætu snör viðbrögð yfirvalda við þeim misbresti sem einkenndi markaðinn á síðustu vikum latt menn í leitinni að nýjum leiðum fram hjá reglunum. jonab@markadurinn.is
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira