Óvíst hvort Ólafur tapi sínum stærstu eigum 2. apríl 2009 19:30
Það ræðst á næstu dögum og vikum hvort að Ólafur Ólafsson tapar öllum sínum stærstu eignum. Allt stendur og fellur með nauðasamningum sem Egla, dótturfélag í hans eigu, reynir að ná við kröfuhafa. Egla, sem er dótturfélag Kjalars, hélt fund með kröfuhöfum í gær. Kjalar er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar. Þar var lagt fram frumvarp að nauðasamningum til að bjarga félaginu frá gjaldþroti. 77 einstaklingar, bankar og lífeyrissjóðir eiga 8 milljarða króna kröfu á félagið en 38 þeirra mættu í gær. Í nauðasamningunum er gert ráð fyrir að eignir Eglu dugi til að greiða 15% af þessum kröfum. Í beiðni um heimild til nauðasamningsumleitana kemur fram að vonir séu bundnar við að eitthvað komi út úr skaðabótakröfu vegna vanefnda Kaupþings á gjaldmiðlaskiptasamningum við félagið. Kjalar mun láta á það reyna fyrir dómi um leið og það verður mögulegt. Innan við fjórðungur kröfuhafa hefur nú þegar samþykkt nauðasamninganna en samþykki hinna liggur ekki fyrir. Náist nauðasamningarnir ekki er ljóst að Egla stefnir í gjaldþrot. Stærsta eign Eglu er 7,7 milljarða krafa á Kjalar. Á fundinum var gert ráð fyrir að sú krafa væri um 300 milljóna virði í dag. Ljóst er að ef Egla fer í þrot verður gengið mun harðar að því að innheimta kröfuna á Kjalar en þá blasir gjaldþrot einnig við því félagi. Kjalar á 90% í Samskipum og 33% í HB Granda. Þá átti hollenskt félag í eigu Eglu 40% hlut í Alfesca. Unnið er nú að málefnum þess félags með skilanefnd Glitnis. Eignarhald á þessum félögum mun skýrast á allra næstu vikum en töluverð óvissa er með hvort að Ólafur Ólafsson nái að halda þeim. Ólafur vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu í dag en lögmaður Kjalars, Kristinn Hallgrímsson, sagði í samtali við fréttastofu að það væri ekki sjálfgefið að Kjalar færi í þrot þó að Egla yrði gjaldþrota því það væru hagsmunir beggja félaganna að láta reyna á skaðabótakröfu Kjalars gagnvart Kaupþingi.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira