Byggðastofnun tapaði tæpum 1,7 milljörðum, eigið fé horfið 29. september 2009 08:17
Byggðastofnun skilaði 1.663 milljón kr. tapi á fyrri helming ársins. Fjárhagsstaða stofnunarinnar er mjög slæm því samkvæmt árshlutauppgjörinu er eigið fé stofnunarinnar orðið neikvætt um 118,7 milljónir kr. Í tilkynningu um uppgjörið segir að framlög í afskriftarreikning útlána og matsbreyting hlutafjár námu 2.161 milljónum kr. á tímabilinu. Eignir námu 22,8 milljörðum kr. og hafa lækkað um 518.6 milljónir kr. frá áramótum. Þar af voru útlán 18,9 milljarðar kr. Skuldir námu 22,9 milljörðum kr. og hafa hækkað um 1.145 milljónir kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -4,74% en skal að lágmarki vera 8% „Vegna þeirra erfiðleika sem dunið hafa yfir íslenskt efnahagslíf undanfarna mánuði hefur stofnunin þurft að leggja aukna fjármuni inn á afskriftarreikning útlána vegna mögulegrar taphættu. Á tímabilinu nam þessi fjárhæð 1.930 milljónum kr. Í samanburði við 1.237 milljónum kr. allt árið 2008. Skýrist tap stofnunarinnar og neikvætt eiginfjárhlutfall á tímabilinu af þessum varúðarfærslum," segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að Fjármálaeftirlitið hefur gefið stofnuninni frest til 8. desember 2009 til að koma eiginfjárhlutfallinu upp fyrir 8% lágmark. Af hálfu stjórnar hefur iðnaðarráðherra verið gerð grein fyrir stöðu mála. Nauðsynlegt er að auka eigið fé stofnunarinnar til að uppfylla kröfur laga um fjármálafyrirtæki um lágmarkseiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Verði það ekki gert leikur verulegur vafi á áframhaldandi rekstrarhæfi stofnunarinnar. Iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra hafa lýst því yfir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leita heimilda á fjáraukalögum til að tryggja lágmarks eiginfjárhlutfall stofnunarinnar.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira