Hugsanlega að þiðna á botnfrosnum íbúðamarkaði 21. september 2009 12:07
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu voru 57 í síðustu viku og er það meira en hefur verið í einni viku síðan í október í fyrra. Þegar litið er á meðaltal síðustu fjögra vikna stendur það í 46 samningum á viku og er fjöldinn í síðustu viku því meiri en hefur verið að meðaltali undanfarið. Meira líf er því í fasteignaviðskiptum á þennan mælikvarða en verið hefur undanfarið. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að árstíðarsveiflan sé sterk í viðskiptum á fasteignamarkaði. Þannig liggja viðskiptin að töluverðu leyti niðri yfir sumarmánuðina en aukast síðan aftur með haustinu. Þannig var vikan frá 12.-18. september í fyrra veltumesta vikan frá því mars það árið. Í heild voru kaupsamningarnir 90 í þeirri viku. Fjögra vikna meðaltalið stóð þá í 84 samningum og var veltan þá vikuna yfir því og markaðurinn þannig að taka við sér þá líka. Þegar farið er aftur til ársins 2007 voru samningar í vikunni 14.-20. september 250 á höfuðborgarsvæðinu og talsvert umfram fjögra vikna meðaltalið sem þá stóð í 204. Markaðurinn var þá líka að taka við sér í sömu viku. Að þessu sögðu er ekki hægt að túlka aukningu í kaupsamningum í síðustu viku á annan hátt en að um hefðbundna árstíðarsveiflu sé að ræða. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði bæði núna í júlí og ágúst, samtals um 1,1%, eftir að hafa lækkað samfellt frá því í júlí í fyrra samkvæmt verðvísitölu Fasteignaskrár Íslands. Stór hluti af sparnaði heimilanna er bundinn í íbúðarhúsnæði og hefur sparnaður þessi rýrnað talsvert undanfarið ár eða svo með lækkun íbúðaverðs og hækkun höfuðstóls lána sem komið hefur til vegna mikillar verðbólgu og mikillar lækkunar krónunnar. Hækkun húsnæðisverðs nú væri því til þess fallin að rétta efnahag heimilanna aðeins af. Á markaði sem er jafn lítill og íbúðamarkaðurinn er á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir, er óráðlegt að taka verðsveiflur milli einstakra mánaða í mælingum Fasteignaskrárinnar of bókstaflega.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira