Segir að örlög 14% hlutar í Iceland ráðist strax 13. júní 2009 09:48
Malcolm Walker forstjóri verslunarkeðjunnar Iceland segir að örlög tæplega 14% hlutar í Iceland, sem nú er í eigu Landsbankans, muni ráðast strax. Hann vildi síðan ekki tjá sig nánar um málið að því er segir í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni. Walker segir að nú séu aðeins tveir eigendur að Iceland, það er stjórn keðjunnar og íslenska ríkið í gegnum skilanefndir Landsbankans og Glitnis. Það hefur hinsvegar margoft komið fram að engin áform eru af hálfu Landsbankans að selja þennan hlut í bráð en hluturinn var fyrrum í eigu Baugs. Þetta staðfestir Zelf Hussain forstjóri PricewaterhouseCoopers, sem fer með stjórn hlutarins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, í tölvupósti til Bloomberg. Hussain segir að ætlunin sé að halda hlutnum áfram. Bloomberg ræddi einnig að Piers Schreiber talsmann Landsbankans í London um málið sem segir að ekkert sé að gerast hvað varði hlutinn. Iceland skilaði mjög góðu uppgjöri fyrir síðasta reikningsár sem lauk í lok mars. Hagnaður nam 23 milljörðum kr. af rekstri keðjunnar. Og veltan jókst um 16% frá fyrra ári og nam 420 milljörðum kr.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira