Er gengisstöðugleiki sumarsins á enda? 4. ágúst 2009 12:13
Krónan tók að veikjast nokkuð í síðustu viku eftir stöðugleika í júlímánuði. Gengisvísitalan stóð hæst í 238 stigum og hafði krónan þá veikst um ríflega 2,5% frá upphafi vikunnar. Vístalan endaði vikuna hins vegar í 234 stigum eftir inngrip Seðlabankans á föstudag og hafði þá lækkað um tæplega 1% í vikunni. Greining Íslandsbanka segir frá þessu í dag. Gengi krónunnar var afar stöðugt nánast allan júlímánuð. Vísitalan sveiflaðist á bilinu 230-234 þar til í byrjun síðustu viku.Gjaldeyrismarkaðurinn nánast óvirkur í mánuð Helsta ástæða stöðugleikans í júlí er líklega sú að veltan hefur verið lítil sem engin og má væntanlega rekja það til sumarfría landsmanna. Veltan á millibankamarkaði nam einungis tæpum 150 milljónum að meðaltali á dag og er það með því minnsta sem hefur sést á þeim markaði. Það mætti því segja að markaðurinn hafi verið allt að því óvirkur í mánuðinum og því líklega ekki að furða að hreyfingar í krónunni hafi verið litlar.Frestun á láni AGS hafði áhrif til veikingar krónunnar Frestun á afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á öðrum hluta lánsins til Íslands hafði einnig neikvæð áhrif. Heildarveltan í mánuðinum nam 3,5 milljarði króna, en rúmur milljarður af heildarveltunni eða 35% var tilkominn vegna inngripa Seðlabanka Íslands. Ögn meira líf hefur því færst í gjaldeyrismarkaðinn og spurning hvort að gengisstöðugleiki sumarsins sé á enda.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira