Kostnaður vegna varnarmála tveir milljarðar árið 2008 Gunnar Örn Jónsson skrifar 4. ágúst 2009 14:52 Ellisif TInna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar.
Gjöld utanríkisráðuneytisins vegna varnarmála námu tveimur milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt ríkisreikningi fjársýslu ríkisins. Varnarmálastofnun ber stærstan hluta kostnaðar af varnarmálum hér á landi eða 600 milljónir. Stofnunin heyrir undir utanríkisráðuneytið en Alþingi setti varnarmálalög þann 29. apríl á síðasta ári. Nokkur umræða hefur verið um framtíð Varnarmálastofnunar en Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, telur rétt að hætta loftrýmisgæslunni sem stofnunin sér um. Auk þess hefur hann látið hafa eftir sér að stefna ríkisstjórnarinnar sé að leggja Varnarmálastofnun niður. Utanríkisráðherra skipaði Ellisif Tinnu Víðisdóttur, forstjóra Varnarmálastofnunar til fimm ára frá og með 1. júní árið 2008 en þann dag tók stofnunin formlega til starfa. Laun og launatengd gjöld Varnarmálastofnunar námu 230 milljónum króna og rekstur loftrýmisbúnaðar kostaði rúmlega 114 milljónir króna. Heildarkostnaður við rekstur fasteigna á vegum NATO nam rúmum 69 milljónum króna. Sem fyrr segir var heildarkostnaður stofnunarinnar rétt tæplega 600 milljónir.Hlutverk Varnarmálastofnunar Varnarmálastofnun sér meðal annars um rekstur íslenska loftvarnakerfisins og tekur þátt í samræmdu loftrýmiseftirliti og loftrýmisgæslu NATO. Stofnunim hefur auk þess umsjón með rekstri og hagnýtingu öryggissvæða og mannvirkja og umsjón varnaræfinga hérlendis. Kostnaður af starfi nefnda og undirstofnana NATO heyrir undir Varnarmálastofnun sem og sá kostnaður sem hlýst af verkefnum er varða framkvæmd varnarsamningsins.Markmið Varnarmálastofnunar er fjórþætt Í fyrsta lagi að afmarka valdheimildir íslenskra stjórnvalda varðandi varnartengd verkefni. Í öðru lagi að greina á milli varnartengdra verkefna og borgaralegra verkefna sem lúta að löggæslu og innra öryggi ríkisins. Í þriðja lagi að greina á milli stefnumótunar og framkvæmdaratriða á sviði varnarmála og loks að auðvelda lýðræðislegt eftirlit með varnartengdri starfsemi. Fimmtiu og fjórir starfsmenn eru fastráðnir hjá Varnarmálastofnun. Fjárheimildir stofnunarinnar nema 1.227 milljónum króna á árinu 2009.
Tengdar fréttir Loftrýmisgæslu verði hætt Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að leggja eigi niður Varnarmálastofnun um áramótin. Í fjárlögum næsta árs eigi að vera skýrt hvaða verkefni hennar verði lögð niður og hvert hin verði færð. Árni Þór vill leggja loftrýmisgæslu niður. 28. júlí 2009 05:00 Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira
Loftrýmisgæslu verði hætt Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að leggja eigi niður Varnarmálastofnun um áramótin. Í fjárlögum næsta árs eigi að vera skýrt hvaða verkefni hennar verði lögð niður og hvert hin verði færð. Árni Þór vill leggja loftrýmisgæslu niður. 28. júlí 2009 05:00