Hagnaður Landsvaka tæplega eitt hundrað milljónir 31. ágúst 2009 15:09
Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest árshlutauppgjör félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2009. Hagnaður af rekstri félagsins fyrstu sex mánuði ársins nam 96,9 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka í lok júní nam 238,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins nam 44,9%. Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. Á fyrri hluta ársins annaðist Landsvaki hf. rekstur 26 sjóða um sameiginlega fjárfestingu samanborið við 30 sjóði á sama tímabili 2008 en á tímabilinu voru stofnaðir 2 nýjir sjóðir og 2 sjóðum var slitið. Í lok tímabilsins nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 44,3 milljörðum króna. Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaði við fall bankanna í byrjun október 2008 hafa haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins og orsakað að heildareignir í stýringu hafa minnkað verulega. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sem starfar á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki og annast rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Landsvaki hf. er í eigu Landsbankans.
Mest lesið Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Viðskipti innlent Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Viðskipti innlent Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Viðskipti innlent „Prófaðu að segja við AI: Ókei, ég vil að þú hjálpir mér í vinnunni“ Atvinnulíf Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða Viðskipti innlent Rúna nýr innkaupastjóri Banana Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Viðskipti innlent Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Viðskipti innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Sjá meira