Skrifaði bók um föður framsalsbeiðanda 30. október 2009 11:28 Hosmany Ramos.
Dómsmálaráðuneytið hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Hosmany Ramos sem hefur verið hér á landi síðan í haust. Lögmaður Hosmanys, Hilmar Ingimundarson, hefur andmælt því fyrir hönd skjólstæðings síns. Meðal annars vegna þess að Hosmany segist hafa skrifað bók um föður Romeo Tuma junior, sem hefur lagt fram framsalsbeiðnina fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Faðir hans, sem einnig heitir Romeo Tuma, var lögreglustjóri í Sao Paolo. Í bók Hosmanys sakaði hann Tuma um spillingu og mútuþægni í starfi. Framsalsbeiðnin er enn til skoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu sem og útlendingastofnun. Hosmany hefur verið í gæsluvarðhaldi allan tímann sem það ferli hefur staðið yfir. Enginn framsalssamningur er á milli landanna. Aðspurður segist Hilmar fá mikið af hringingum frá blaðamönnum í Sao Paolo þar sem mikill áhugi virðist vera á málum Hosmanys. Hann var einn frægasti fanginn þar í landi og hefur meðal annars skrifað fjölda bóka gagnrýnir hann oft fangelsiskerfið í Brasilíu. Hann er menntaður lýtalæknir en var dæmdur árið 1981 í 21 árs fangelsi fyrir flugvélaþjófnað, bifreiðasmygl og morð. Nokkrum árum síðar strauk hann úr fangelsinu og fékk fyrir vikið enn þyngri dóm. Í desember á síðasta ári fékk Ramos leyfi frá fangelsisvistinni með því skilyrði að hann snéri aftur í byrjun janúar. Hann sást hins vegar ekki aftur fyrr en hann dúkkaði upp í Leifsstöð nú fyrir helgi með falskt vegabréf og var þá handtekinn á stundinni. Hosmany ólst upp í fátækrahverfum í Brasilíu. Afi hans var meðal annars þekktur fyrir að hafa myrt heila fjölskyldu. Þá á faðir hans að hafa myrt meintann ástmann móður Hosmanys. Sjálfur braust Hosmany úr hlekkjum fátæktar og nam lýtalækningar. Hann vingaðist við fræga og fína fólkið í Brasilíu. Fólk vissi hinsvegar ekki að á sama tíma sendi hann gengi til þess að ræna húsin þeirra. Gæsluvarðhaldið rennur út klukkan fjögur í dag en fastlega má búast við því að það fáist. Þeim dómi verður áfrýjað til Hæstaréttar.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira