Heildarútlán ÍLS jukust um 34% milli mánaða 8. desember 2009 10:30
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 34% frá fyrra mánuði, sem aðallega skýrist vegna aukningar á lánum til leiguíbúðafélaga þar sem almenn útlán drógust saman um tæplega 5%. Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 34% frá fyrra mánuði, sem aðallega skýrist vegna aukningar á lánum til leiguíbúðafélaga þar sem almenn útlán drógust saman um tæplega 5%. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu ÍLS. Þar segir að meðalútlán almennra lána voru um 9 milljónir króna í nóvember sem er um 3% lægra en í fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins nema því tæpum 29 milljörðum króna það sem af er árinu 2009 en það eru um 56% minni útlán en á sama tímabili árið 2008. Heildarvelta íbúðabréfa í nóvember nam rúmum 54 milljörðum króna en það er 44% minni velta en í fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur tæpum 864 milljörðum það sem af er árinu 2009 sem er 63% minni velta en fyrir sama tímabil árið 2008. Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækkaði í nóvember um 4 til 42 punkta eftir flokkum. Þann 20. nóvember rann út frestur til að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga í desember, en nýlega voru öll slík lán sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun með lögum. Hjá Íbúðalánasjóði voru 23.146 einstaklingar sem afþökkuðu greiðslujöfnun á 38.087 lánum. Þetta eru 47,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 46,7% af fjölda lána. Þar af eru 14.709 lántakendur í Reykjavík og 8.437 á landsbyggðinni. Í aldurshópnum 50 -60 ára er hæsta hlutfall þeirra sem afþakka greiðslujöfnun, eða 50,9%, en fæstir afþakka meðal þeirra sem eru yngri en 30 ára, eða 29,6%. Mögulegt er að segja sig í eða frá greiðslujöfnun á hvaða tíma sem er en 10 dögum fyrir gjalddaga í hvert sinn. Þann 25. nóvember tilkynnti Íbúðalánasjóður samþykkt stjórnar sjóðsins um að réttur til að breyta vöxtum skuldabréfa sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum skuli ekki nýttur í fyrsta sinn sem hann myndast. Vextir af þessum skuldabréfum verða því óbreyttir a.m.k. næstu fimm árin. Hefðbundin lán Íbúðalánasjóðs eru hinsvegar með föstum vöxtum. Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 704 milljónum króna í nóvember og voru afborganir að mestum hluta vegna húsnæðisbréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í nóvember námu um 1,2 milljörðum króna. Heildaruppgreiðslur allra lána Íbúðalánasjóðs eru því um 8,3 milljarður króna það sem af er árinu 2009.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira