Langtímafjármögnun Marel upp á 30 milljarða tryggð 20. maí 2009 10:07
Marel hefur tryggt langtímafjármögnun sína upp á 171 milljón evra eða tæpa 30 milljarða kr. að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Meðallíftími skulda er rúmlega fjögur ár og eru gjalddagar á tímabilinu nóvember 2011 til maí 2017. Þá hefur Marel endurgreitt að fullu skuldabréfaflokk (MARL 09 1) sem skráður er í Kauphöllinni með gjalddaga í dag, 20. maí 2009. Nýr skuldabréfaflokkur að upphæð 3,6 milljarðar króna, sem samsvarar 21 milljónum evra, hefur verið gefinn út með gjalddaga í nóvember 2011. Íslandsbanki, NBI og Nýja-Kaupþing hafa veitt sambankalán að upphæð 116 milljónum evra. Allir afleiðusamningar hafa verið gerðir upp að fullu og Glitnir hefur veitt lán til fimm ára að upphæð 34 milljónir evra. „Við erum þakklát því trausti sem lánadrottnar okkar hafa sýnt okkur. Þeir deila þeirri skoðun okkar að langtímahorfur í rekstri séu góðar," segir Theo Hoen, forstjóri Marel. „Eftir að hafa tryggt stöðuleika í fjármögnun getum við nú einbeitt okkur að daglegum rekstri sem mun gera okkur kleift að ná markmiðum okkar um rekstrarhagnað uppá 10-12% af sölu frá og með árinu 2010." Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel segir að íslensku bankarnir sýndu styrk sinn með því að taka höndum saman um að tryggja langtímafjármögnun Marel Food Systems. „Við erum jafnframt mjög ánægð með það traust sem lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar sem tóku þátt í skuldabréfaútboðinu félagsins hafa sýnt okkur," segir Árni. Að auki veitti hópur banka í Vestur Evrópu undir forystu Rabobank okkur langtímalán árið 2008 með gjalddaga árin 2016 og 2017."
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira