Á fimmta tug mála á borði sérstaks saksóknara Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. desember 2009 19:13 Ólafur Þór Hauksson. Mynd/Daníel Rúnarsson
Á fimmta tug mála sem tengjast hruni bankanna er nú á borði sérstaks saksóknara. Þá hefur fjöldi kæra til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra nærri tvöfaldast á tveimur árum. Álag á ákæruvald og dómstóla hefur aukist gríðarlega eftir bankahrunið á sama tíma og stjórnvöld hafa þurft að skera niður framlög vegna versnandi stöðu ríkisfjármála. Óhætt er að fullyrða að ríkisstjórnin hafi skynjað þörfina fyrir aukinn þunga í rannsókn efnahagsbrota enda hafa framlög til sérstaks saksóknara verið aukin. Almenningur vill sjá réttlæti. Þetta kristallaðist vel í orðum Karls Axelssonar, lögmanns Baldurs Guðlaugssonar, í réttarsal á þriðjudag þegar hann sagði: „Það er uppi ómennska í samfélaginu, sem heimtar blóð og hefnd, vegna þess sem hér gerðist í fyrra. Í slíku ástandi reynir á dómstóla sem þurfa að verja réttarríkið." Þrátt fyrir háværa kröfu um réttlæti eru dómendur aðeins bundnir af lögum í niðurstöðum sínum, samkvæmt 61. gr. Stjórnarskrárinnar, en þar segir: „Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum." Þetta þýðir að dómstólar geta aðeins farið eftir því sem er almennt viðurkennt að nota megi til rökstuðnings þegar réttarreglum er slegið föstum í dómsniðurstöðum. Þegar kemur að opinberum málum geta þeir að meginreglu til aðeins beitt settum lögum þegar dæma á menn til refsingar. Ólíkt því sem gildir um löggjafarvaldið og stjórnmálamenn almennt sem oft eru háðir duttlungum kjósenda og finna sig knúna til að elta almenningsálitið, geta dómarar ekki látið annað ráða niðurstöðum sínum sínum en gildandi lög í landinu og staðreyndir máls. Það skiptir því engu máli fyrir dómendur hversu hávær mótmælin verða eða hversu stór brennan verður niðri á Austurvelli. Ef staðreyndir máls liggja ekki fyrir og sekt sakbornings er ekki hafin yfir skynsamlegan vafa, verða þeir að sýkna. Sem stendur eru tvær efnahagsbrotadeildir starfandi í landinu, embætti sérstaks saksóknara og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Efnahagsbrotadeildin hefur verið gagnrýnd á liðnum árum. Niðurstöður úr stórum málum eins og Baugsmálinu og Málverkafölsunarmálin hefur líklega sáð fræjum rýrrar eftirtekju í huga almennings enda um afar umfangsmikil mál að ræða. Tölfræðin lýgur þó ekki. Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á embætti ríkislögreglustjóra frá árinu 2006 kemur fram sakfellingarhlutfall efnahagsbrotadeildar, en deildin kemur nokkuð vel út úr samanburði við hliðstæður sínar í Noregi og Svíþjóð, en sakfellingarhlutfallið árin 2003-2005 er að meðaltali 92 prósent á þessum árum. Að sögn Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahagsbrota, hefur tölfræðin frá árinu 2006 haldist við 90 prósentin, þrátt fyrir að starfsmönnum deildarinnar hafi fækkað frá þessum tíma. Þess ber þó að geta að langstærsti hluti brotanna sem deildin fæst við eru skattalagabrot. Það skekkir þessar tölur, enda eru mörg þeirra mála sem nú eru til rannsóknar umfangsmikil og taka á mörgum brotategundum. Bent hefur verið á að eðlilegt sé að sameina efnahagsbrotadeildina við embætti sérstaks saksóknara. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er sameining þessara embætta það langtímamarkmið sem unnið er eftir, enda ekki mörg smáríki í heiminum þar sem starfræktar eru tvær efnahagsbrotadeildir.
Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira