Segir endurreisn íslensku bankanna verða dýra 26. maí 2009 04:15 „
Hann á að bjarga efnahag Íslands." Þetta segir í fyrirsögn á viðtali við sænska ráðgjafann Mats Josefsson frá Uppsölum í Svíþjóð sem hefur unnið að endurreisn bankakerfisins og fjármálalífsins hér á landi síðustu mánuði. Í viðtalinu kemur fram að Mats Josefsson hafi verið á leið í helgan stein þegar óskað var eftir aðstoð hans við að leysa efnahagsvandann hér á landi, sem sé einn sá alerfiðasti í öllum heiminum og það þó að kreppan hrjái líka önnur lönd. „Ekkert land í heiminum hefur lent jafn illa í því og Ísland og hvergi verður eins erfitt og dýrt að koma hagvextinum í gang aftur og auka trú á hagkerfinu," segir Josefsson í viðtalinu. „Ég hef tekist á við margar bankakreppur en enga eins og þessa á Íslandi." Mats Josefsson er þekktur fyrir að hafa tekist á við margar bankakreppur, ekki bara í Svíþjóð heldur líka í Asíu, Suður-Ameríku og Austur-Evrópu. Hann segir að eftir einkavæðinguna hér árið 2003 hafi bankarnir byrjað að kaupa fyrirtæki út um allt. Ekkert þessu líkt hafi nokkru sinni átt sér stað. Hlutabréfamarkaðurinn nífaldaðist, húsnæðisverðið þrefaldaðist, efnahagur fjölskyldnanna þrefaldaðist og ríkið fékk miklar tekjur. „Endurbygging bankanna verður að vera algjört forgangsverkefni. Til að atvinnulífið virki verður það að fá stuðning af bönkum sem virka. En það verður dýrt. Ég held að Íslendingarnir geri sér ekki grein fyrir hversu dýrt það verður eða um 85 prósent af vergri landsframleiðslunni," segir Josefsson.- ghs
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira