Fallist á varakröfu í Landsvakamálinu upp að vissu marki 7. október 2009 13:03 Jóhann Hafstein flutti málið fyrir handhafa hlutdeildarskírteina í Landsvaka.
Héraðsdómur féllst í dag á kröfu handhafa hlutdeildarskírteina hjá Landsvaka, peningamarkaðssjóðs Landsbankans. Landsbankinn var sýknaður af aðalkröfu stefnandans en dómurinn féllst á varakröfu stefnenda, upp að vissu marki. Átján manna hópur fólks krafðist bóta frá Landsbankanum og Landsvaka, sem var vörsluaðili peningamarkassjóða Landsbankans. Fólkið tók sig til og stefndi Landsbankanum og Landsvaka en málið snýst um rýrnun á eignum í peningamarkaðssjóðum bankans, en eftir hrun fengu þeir sem þar höfðu lagt inn fé sitt aðeins tæp 69 prósent endurgreidd. Hópurinn höfðaði málið til þess að fá leiðréttingu - meðal annars á þeim forsendum að upplýsingar um fjárfestingarstefnu sjóða hafi verið ófullnægjandi. Eignir fólksins voru misháar - námu allt frá hálfri milljón króna upp í 50 milljónir. Telja má víst að dómurinn í dag verði fordæmisgefandi fyrir þau mál sem á eftir koma. Fallist á varakröfu að hluta Stefnendur kröfðust þess aðallega að stefndu yrði gert að greiða bætur, misháar eftir atvikum, ásamt dráttarvöxtum frá þingfestingardegi til greiðsludags. Til vara var þess krafist að viðurkenndur yrði með dómi réttur til skaðabóta úr hendi stefndu vegna þeirrar rýrnunar sem varð á verðmæti eignarhlutum í peningamarkaðssjóði Landsbankans og rekja mætti til saknæmrar og ólögmætrar háttsemi stefndu við rekstur sjóðsins frá því stefnandi fjárfesti í sjóðnum og þar til honum var slitið 28. október 2008. Á þetta féllst dómurinn að vissu marki. Dómurinn féllst á það með stefnenda að hlutdeildarskírteinishöfum hafi verið mismunað í aðdraganda að lokun sjóðsins 6. október 2008 eftir því hvort þeir innleystu hlutdeild sína eða ekki. „Þeir, sem innleystu hlutdeild sína frá 10. september 2008 til lokunar 6. október s.á., fengu of hátt verð fyrir eignarhlut sinn í sjóðnum sem leiddi til þess að eign þeirra, sem eftir sátu, rýrnaði að sama skapi. Með þessu hafa stefndu ekki gætt jafnræðis sjóðfélaga hlutdeildarskírteinishafa eins og þeim var skylt, sbr. m.a. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 30/2003, og bakað sér bótaskyldu gagnvart stefnanda," segir í dómnum. Einnig segir að heildartjónið, sem og hlutfallslegt tjón stefnenda sé unnt að meta úr frá gögnum í bókhaldi sjóðsins. Ekki skylt að selja eignir Ekki var fallist á varakröfuna á grundvelli þeirra málsástæðna stefnanda sem lutu að því að fjárfestingar sjóðsins og eignasamsetning hans hafi verið í ósamræmi við fyrir fram kunngerða fjárfestingarstefnu, markaðssetning sjóðsins hafi verið í ósamræmi við raunverulega markaðsáhættu hans og fjárfestingarstefnu og að forsvarsmönnum sjóðsins hafi borið að hlutast til um að takmarka frekari útgáfu hlutdeildarskírteina þegar þeim mátti vera ljóst að stækkun hans mundi auka verulega skuldaraáhættuna og hugsanlegt greiðslufall. „Stefnandi telur að sjóðsstjórnin hefði átt að selja eignir í réttum hlutföllum þegar sjóðurinn minnkaði um rúman þriðjung og verður það skilið þannig að hlutdeild eignaflokka hefði átt að haldast óbreytt þrátt fyrir minnkunina. Ekki verður séð að bein fyrirmæli í þessa veru séu í reglum sjóðsins," segir í dómnum. Stefndu, Landsvaki hf. og Landsbanki Íslands hf., eru því sýknir af aðalkröfu stefnenda en viðurkenndur er réttur stefnenda til skaðabóta óskipt úr hendi stefndu að því marki sem nánar greinir í forsendum dómsins. Málskostnaður var einnig felldur niður.
Tengdar fréttir Fyrsti dómur vegna bankahrunsins fellur á miðvikudaginn Fyrsti dómur í málum gegn bönkunum eftir bankahrunið mun falla í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. október næstkomandi. Um er að ræða mál gegn gamla Landsbankanum og Landsvaka, sem var vörsluaðili peningamarkassjóða Landsbankans. 1. október 2009 15:55 Dæmt í peningamarkaðssjóðsmálum í dag Fyrstu dómarnir í máli gegn einum af gömlu bönkunum verða kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Niðurstaðan mun hafa fordæmisgildi. 7. október 2009 12:18 Málflutningur í Héraðsdómi vegna peningamarkaðssjóðanna Aðalmeðferð fer fram í máli eigenda hlutdeildarskirteina í peningamarkaðssjóði Landsbankans gegn gamla Landsbankanum og Landsvaka dótturfélagi bankans í lok ágúst. 10. ágúst 2009 13:21 Sjóðir Landsvaka rýrnuðu um 176 milljarða milli ára Sjóðir Landsvaka rýrnuðu um 176 milljarða kr. milli áranna 2007 og 2008. Í árslok 2007 nam heildarstærð sjóðanna 251,4 milljörðum kr. en í árslok 2008 var stærðin komin niður í 75,5 milljarða kr. 12. maí 2009 09:57 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira
Fyrsti dómur vegna bankahrunsins fellur á miðvikudaginn Fyrsti dómur í málum gegn bönkunum eftir bankahrunið mun falla í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. október næstkomandi. Um er að ræða mál gegn gamla Landsbankanum og Landsvaka, sem var vörsluaðili peningamarkassjóða Landsbankans. 1. október 2009 15:55
Dæmt í peningamarkaðssjóðsmálum í dag Fyrstu dómarnir í máli gegn einum af gömlu bönkunum verða kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Niðurstaðan mun hafa fordæmisgildi. 7. október 2009 12:18
Málflutningur í Héraðsdómi vegna peningamarkaðssjóðanna Aðalmeðferð fer fram í máli eigenda hlutdeildarskirteina í peningamarkaðssjóði Landsbankans gegn gamla Landsbankanum og Landsvaka dótturfélagi bankans í lok ágúst. 10. ágúst 2009 13:21
Sjóðir Landsvaka rýrnuðu um 176 milljarða milli ára Sjóðir Landsvaka rýrnuðu um 176 milljarða kr. milli áranna 2007 og 2008. Í árslok 2007 nam heildarstærð sjóðanna 251,4 milljörðum kr. en í árslok 2008 var stærðin komin niður í 75,5 milljarða kr. 12. maí 2009 09:57