Landsvaki ósammála niðurstöðu héraðsdóms 7. október 2009 16:22
Landsvaki lýsir sig ósammála niðurstöðu dóms sem féll í dag í máli átján einstaklinga sem stefndu Landsbankanum og Landsvaka, sem var vörsluaðili peningamarkassjóða Landsbankans. Dómurinn sýknaði stefndu af aðalkröfu en féllst að hluta til á varakröfu stefnenda og eru forsvarsmenn Landsvaka ósammála því. Í yfirlýsingu frá Landsvaka segir að samkvæmt dómnum hafi Landsvaka borið að lækka gengi sjóðsins þann 10. september 2008 vegna frétta um að líkur væru á að ábyrgð vegna XL Leisure Group myndi falla á Eimskip. „Dómurinn telur að þeir sem innleystu á tímabilinu frá 10. september 2008 til lokunar 6. október hafi fengið of hátt verð fyrir eignarhlut sinn í sjóðnum og þeir sem eftir sátu hafi orðið fyrir tjóni. Landsvaki vill taka fram að niðurfærslur eigna voru að mati félagsins fullnægjandi í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga á hverjum tíma." Landsvaki bendir á að í dómnum sé tekið fram að fjárfestingar sjóðsins hafi verið innan fjárfestingaheimilda og þeirra laga sem gilda um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Þá segi að markaðssetning Peningabréfa Landsbankans hafi ekki verið villandi varðandi áhættustig og öryggi. Í þriðja lagi kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að kynning sjóðsins hafi verið í samræmi við reglur hans og útboðslýsingu svo og lagaákvæði sem hana varðar og að lokum er bent á að kynningarefni hafi verið skýrt og aðgengilegt og markaðssetning á engan hátt villandi.
Tengdar fréttir Fallist á varakröfu í Landsvakamálinu upp að vissu marki Héraðsdómur féllst í dag á kröfu handhafa hlutdeildarskírteina hjá Landsvaka, peningamarkaðssjóðs Landsbankans. Landsbankinn var sýknaður af aðalkröfu stefnandans en dómurinn féllst á varakröfu stefnenda, upp að vissu marki. 7. október 2009 13:03 Dæmt í peningamarkaðssjóðsmálum í dag Fyrstu dómarnir í máli gegn einum af gömlu bönkunum verða kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Niðurstaðan mun hafa fordæmisgildi. 7. október 2009 12:18 Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira
Fallist á varakröfu í Landsvakamálinu upp að vissu marki Héraðsdómur féllst í dag á kröfu handhafa hlutdeildarskírteina hjá Landsvaka, peningamarkaðssjóðs Landsbankans. Landsbankinn var sýknaður af aðalkröfu stefnandans en dómurinn féllst á varakröfu stefnenda, upp að vissu marki. 7. október 2009 13:03
Dæmt í peningamarkaðssjóðsmálum í dag Fyrstu dómarnir í máli gegn einum af gömlu bönkunum verða kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Niðurstaðan mun hafa fordæmisgildi. 7. október 2009 12:18