Lítið hreyfist af sérbýlum á íbúðamarkaðinum 21. apríl 2009 12:16
Þegar veltutölur af fasteignamarkaði eru skoðaðar kemur glögglega í ljós hversu lítil hreyfing hefur verið með sérbýli á íbúðarmarkaði undanfarna mánuði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að í Reykjavík voru gerðir 20 kaupsamningar um sérbýli fyrstu 3 mánuði ársins en á sama tímabili fyrir ári síðan voru gerðir 53 kaupsamningar um sérbýli. Í Kópavogi voru gerðir kaupsamningar um 3 sérbýli á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á Seltjarnarnesi hefur engin hreyfing verið á íbúðamarkaði með sérbýli það sem af er þessu ári. Þetta endurspeglar það mikla frost sem nú ríkir á íbúðamarkaði. Fyrstu mánuði þessa árs hafa umsvifin á íbúðamarkaði verið um það bil 60% minni en á sama tíma fyrir ári síðan. Hafa ber í huga að samdráttur var þegar hafinn á íbúðamarkaði í upphafi síðasta árs. Þegar umsvif á markaði núna eru borin saman við sömu mánuði árið 2007 á meðan uppsveiflan var enn við lýði á íbúðamarkaði kemur í ljós að veltan á fyrstu mánuðum ársins 2009 er aðeins fimmtungur af því sem var þá. Íbúðaverð hefur nú gefið töluvert eftir það sem af er ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 6% að nafnvirði frá áramótum samkvæmt vístölu íbúðaverðs sem tekin er saman af Fasteignaskrá Íslands. Íbúðaverð sérbýlis hefur dregist saman um 6,5% frá áramótum en verð á fjölbýli hefur dregist saman um 5,8%.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira