Fullyrt að Ronaldo hafi náð samkomulagi við Real Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. janúar 2009 10:45 Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Spænski blaðamaðurinn Guillem Balague heldur því fram á heimasíðu sinni í dag að Christiano Ronaldo hafi náð samkomulagi við Real Madrid um að spila með félaginu á næstu leiktíð. Ronaldo var í gær kjörinn knattspyrnumaður ársins af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, og kemur því ekki á óvart að sá orðrómur að Ronaldo sé á leið til Spánar, sé kominn fram í enn eitt skiptið. Balague heldur því fram að Roman Calderon, forseti Real Madrid, hafi náð samkomulagi við Jorge Mendes, umboðsmann Ronaldo, um kaup og kjör hans. Enn eigi þó eftir að sannfæra Manchester United um að selja kappann. „Mér skilst að Roman Calderon hafi náð samkomulagi við leikmanninn," sagði Balague í samtali við fréttastofu Sky. „Hann ætlar að borga Cristiano Ronaldo tólf milljónir evra og Jorge Mendes átta milljónir. Félagið á svo 85 milljónir - sem gæti hækkað upp í 105 milljónir - til að borga Manchester United." „Allt þetta þýðir ekki að samkomulag sé í höfn á milli félaganna. Ég hef samt lagt þetta fyrir hátt setta menn hjá Real Madrid sem hafa ekki viljað staðfesta eða neita þessu en segja að ég sé á réttri leið." Belague segir að um munnlegt samkomulag sé að ræða á milli Mendes og Calderon. En ljóst er að þessar fregnir, ef þær reynast réttar, eiga eftir að reita Alex Ferguson og aðra forráðamenn United til reiði.
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira