Samningur við Cayman-eyjar um upplýsingaskipti undirritaður 2. apríl 2009 11:03 Frá undirritun samningsins.
Í gær var samningur Norðurlanda og Cayman-eyja um upplýsingamiðlun undirritaður við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi. Samningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um skattskyldar innstæður og tekjur og getur veitt aðgang að fjármagni sem ekki hefur verið gefið upp til skatts í heimalandinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni „Þetta er mikil framför fyrir norrænt samstarf. Samningurinn er mikilvægur liður í þeirri stefnu að semja við önnur ríki um skattamál," segir Ingemar Hansson ráðuneytisstjóri í sænska fjármálaráðuneytinu. Samkvæmt Alden McLaughlin ráðherra alþjóðlegrar fjármálaþjónustu á Cayman-eyjum, er samningurinn við Norðurlönd augljós merki um að stjórnvöld á Cayman-eyjum vilji taka upp staðla OECD um gegnsæi og upplýsingamiðlun í skattamálum. „Ég vona að þessi samningur sé upphafið á áhrifaríku samstarfi milli Norðurlanda og Cayman-eyja," sagði Alden McLaughlin. Samningurinn er árangur umfangsmikillar vinnu. Áður hafa fjármálaráðherrar Norðurlanda undirritað svipaða samninga við stjórnvöld á Mön, Jersey og Guernsey. Þann 16. apríl verður hliðstæður samningur undirritaður milli Norðurlanda og Bermúda við hátíðlega athöfn í sænska sendiráðinu í Washington. Þá eru samningaviðræður langt komnar við stjórnvöld á Bresku Jómfrúreyjunum, Arúbu og Hollensku Antilleyjunum. Samkvæmt Torsten Fensby, verkefnisstjóra hjá Norrænu ráðherranefndinni, hefur vinna við þessa samninga um upplýsingamiðlun nú haft í för með sér að önnur ríki hafa haft samband við Norðurlönd til þess að gera sambærilega samninga. „Ein af ástæðunum getur verið þær kröfur sem uppi eru í svokölluðum G20-hópi um að það skuli vera forgangsmál að uppræta skattsvik," sagði Torsten Fensby.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira