Þýsk stjórnvöld hótuðu Íslendingum 29. maí 2009 18:36
Þýsk stjórnvöld hótuðu að hafa áhrif á viðræður Íslands við Evrópusambandið og samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef þýskir innstæðueigendur Kaupþing Edge fengju ekki greitt. Í apríl bárust fréttir af því að skilanefnd Kaupþings hefði tryggt fjármagn til að greiða út innistæður 30.000 sparifjáreigenda Kaupþing Edge í Þýskalandi. Nokkrum dögum eftir þessa tilkynningu voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Þeir hnökrar voru þó á lögunum að ekki mátti greiða út neinar kröfur fyrr en búið væri að innkalla allar kröfur í þrotabúið. Slíkt ferli tekur marga mánuði og setti því greiðslur til þýsku innstæðueigendanna í uppnám. Samkvæmt heimildum fréttastofu sendi starfsmaður þýska fjármálaráðuneytisins bréf til skilanefndar Kaupþings til að knýja á um að þessar greiðslur yrðu inntar af hendi hið fyrsta. Að öðrum kosti myndi það hafa slæmar afleiðingar fyrir Ísland. Þjóðverjar gætu haft áhrif á viðræður við Evrópusambandið og samninga við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Mark Flanagan, yfirmaður Íslandsnefndar AGS, segir að þrátt fyrir að Þjóðverjar eigi sæti í stjórn sjóðsins, muni þetta mál ekki hafa nein áhrif á samninginn við Ísland. Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem gera ráð fyrir að skilanefndum verði heimilt að greiða skuldir vegna innlána ef víst sé að nægilegt fé sé til að greiða kröfurnar að fullu. Þýsku innstæðueigendurnir munu því fá greitt en Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að aldrei hafi annað staðið til. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun þó hótun þýska embættismannsins hafa vakið litla kátínu hjá íslenskum ráðamönnum.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira