Kaupþing: Skilanefnd SPRON ber ábyrgð á óvissu viðskiptavina 31. mars 2009 18:08 Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings.
Skilanefnd SPRON ber að fullu ábyrgð á þeirri óvissu sem nú ríkir hjá viðskiptavinum SPRON, að mati Kaupþings. Allt frá því beiðnin kom frá stjórnvöldum um að Nýja Kaupþing tæki við innlánum viðskiptavina SPRON hefur bankanum verið umhugað að viðskiptavinir SPRON yrðu fyrir sem minnstum óþægindum, segir í tilkynningu frá Kaupþingi. Fréttatilkynning Kaupþings: Stjórnvöld fóru þess á leit við Nýja Kaupþing laugardaginn 21. mars að allar innstæður viðskiptavina SPRON og nb.is færðust yfir til bankans. Þetta var gert í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON. Innstæðurnar sem færðust yfir í Nýja Kaupþing að beiðni stjórnvalda eru í raun skuld bankans við viðskiptavini SPRON. Þar sem innstæður eru forgangskröfur eru allar eignir SPRON að veði fyrir þeirri skuldbindingu sem Nýi Kaupþing tók yfir. Nýi Kaupþing hefur því talið nauðsynlegt að búið væri að ganga formlega frá skuldabréfi vegna innstæðna áður en farið væri að huga að sölu eigna SPRON. Skilanefnd SPRON hefur ekki virt þessi tilmæli frá bankanum. Allt frá því beiðnin kom frá stjórnvöldum um að Nýja Kaupþing tæki við innlánum viðskiptavina SPRON hefur bankanum verið umhugað að viðskiptavinir SPRON yrðu fyrir sem minnstum óþægindum. Þjónustuver Nýja Kaupþings var opnað að morgni sunnudagsins 22. mars til að veita viðskiptavinum SPRON upplýsingar og innstæðurnar fluttust yfir samdægurs. mars. Viðskiptavinir SPRON höfðu því strax aðgengi að debet-og kreditkortum sínum, innstæðum og netbönkum SPRON og Nýja Kaupþings. Nýi Kaupþing hefur einnig það verkefni að sinna greiðsluþjónustu fyrir viðskiptavini SPRON. Til að það gæti gengið hnökralaust var nauðsynlegt að gera samning við skilanefnd SPRON vegna þjónustu útlána viðskiptavina SPRON. Skilanefnd SPRON skrifaði undir þjónustusamninginn miðvikudaginn 25. mars. Aðfararnótt fimmtudags færðust útlánin yfir til Nýja Kaupþings. Fljótt kom í ljós að skilanefndin vildi ekki láta af hendi nauðsynleg gögn til þess að Nýi Kaupþing gæti sinnt útlánaþjónustu fyrir viðskiptavini SPRON. Þetta olli viðskiptavinum SPRON óþægindum. Að kröfu skilanefndarinnar færðist þjónusta vegna útlána viðskiptavina SPRON aftur til nefndarinnar. Það var framkvæmt síðastliðna nótt. Viðskiptavinum SPRON er því bent á að leita til skilanefndar SPRON vegna upplýsinga um útlán. Hægt er að beina fyrirspurnum til hennar á skilanefnd@spron.is. Nýi Kaupþing harmar það rask sem viðskiptavinir SPRON hafa orðið fyrir vegna þessa. Nýi Kaupþing hefur nú þegar ráðið til sín á annan tug starfsmanna SPRON til þess að sinna sem best þeim verkefnum sem bankinn var beðinn um að sinna. Skilanefnd SPRON ber því að fullu ábyrgð á þeirri óvissu sem nú ríkir hjá viðskiptavinum SPRON.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira