Opal inn í félag í Lúx 31. mars 2009 12:41 Björgólfur Thor Björgólfsson.
Félagið Opal Global Invest, sem skráð var á eyjunni Tortola rann saman við Sambson Global Holding sem skráð er í Lúxemborg árið 2004. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Björgólfsfeðgum en skiptastjóri í þrotabúi Samsonar ehf segir í skýrslu frá því í febrúar að ekki hafi verið gerð grein fyrir hátt í sexhundruð milljóna króna greiðslu vegna Opal Global. Fram kemur í skýrslu um þrotabú Samsonar, félags Björgólfsfeðga, að erfitt hafi verið að nálgast upplýsingar um sumar greiðslur sem fóru út úr Samson og þá sem þær hafi þegið. Enda séu í sumum tilvikum rýrar upplýsingar í bókhaldi. Meðal þess sem nefnt er í skýrslunni er 580 milljóna króna greiðsla til félags sem heitir Opal Global Invest og er kennt við eyjuna Tortola - alræmt skattaskjól. Þess má geta að skýrslan um þrotabúið er meira en mánaðargömul. Fram kemur í yfirlýsingu frá Björgólfsfeðgum að eftir að skýrslan var kynnt kröfuhöfum hafi fulltrúar Samson rætt við þrotabústjóra og varpað ljósi á ýmis mál. Í yfirlýsingunni segir að ekki sé rétt að Samson hafi greitt 580 milljónir til Tortólufélagsins heldur hafi Samson lánað Opal Global árið 2004. Félagið hafi síðan sama ár runnið saman við annað félag feðganna, Samson Global Holding sem sé skráð í Lúxemborg. Fram kemur í yfirlýsingunni að enginn fótur sé fyrir ályktunum þess efnis að fjármunum Samson ehf hafi verið komið undan eða í skjól eða felur eða runnið til eigenda félagsins. Í öllum tilfellum hafi verið um að ræða fjárfestingar eða viðskiptalán vegna fjárfestinga í nýjum verkefnum.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira